. - Hausmynd

.

841-0551

Hér er yfirlýsing frá Heimavarnarliðinu frá því fyrr í vetur:

  • Heimavarnarliðið ætlar að verja heimili fólks fyrir útburði vegna óréttmætra skuldakrafna, með því að hindra aðgang lögreglu ef þarf.
  • Heimavarnarliðið gengur friðsamlega fram í aðgerðum sínum en áskilur sér rétt til að verja hendur sínar.
  • Liðsmenn í Heimavarnarliðinu geta þeir orðið sem eru lögráða, agaðir og styðja markmið þess.
  • Þeir sem vilja fá aðstoð Heimavarnarliðsins geta haft sambandi í síma 841-0551 eða netfangið heimavarnarlidid@gmail.com.
http://multitrack.powweb.com/hlv_dreifimidinn.pdf

http://multitrack.powweb.com/hlv_plakatid.pdf


mbl.is Bankakreppu velt á almenning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

æðislegt hjá ykkur maður skilur ekki  afhverju  eignir hjá auðmönnum eru ekki teknar eigna uppnámi  og skulda allt í þeim,.

                        gott hjá ykkur gangi  ykkur vel .

soffia kristinsdóttir 4.3.2010 kl. 11:51

2 identicon

Tek undir: Gott hjá ykkur!

eva sól 4.3.2010 kl. 12:26

3 identicon

Glæsilegasta framtak sem ég hef séð lengi :)

.... mætti bæta kannski smá grænmeti, eggjum og súrmjólk inn í leikinn og kannski setja naglamottu undir dekk sýslumanns áður en þeir keyra í burtu

Smá meiri hörku næst en annars mjög ánægður með ykkur!

I I 4.3.2010 kl. 12:50

4 Smámynd: Rauða Ljónið

Myndbandið af uppboðinu http://www.mbl.is/mm/frettir/sjonvarp/?fl=0;media_id=43764;play=1&ref=fpsjonvarp

Rauða Ljónið, 4.3.2010 kl. 13:26

6 Smámynd: Alli

Ég styð ykkur eindregið í mótmælum gegn upptöku á eignum varnarlauss almennings.

Það væri hins vegar mun skemmtilegra að heyra farið rétt með textan sem sunginn var, en hann er svona skv. þessari heimasíðu http://www.vortex.is/omo/fram%20fram%20fylking.htm

Fram fram fylking,forðum okkur háska frá

því ræningjar oss vilja ráðast á.

Sýnum nú hug, djörfung og dug.

Vakið, vakið vaskir menn

því voða ber að höndum.

Sá er okkar síðast fer

mun sveipast hörðum böndum.

Alli, 4.3.2010 kl. 13:59

7 identicon

ll, eiga svo þeir sem eru óánægðir með framkomu heimavarnarliðsins að setja naglamottu undir bílana ykkar þegar þið keyrið í burtu?????

Ég meina ef þú ert að leggja til að ráðast á menn sem bara eru að fara eftir lögum landsins og vinna vinnuna sína, eiga þá þeir sem vilja að lögum sé upphaldið að beita sömu aðferðum og þú leggur til?? Til hvers leiðir það svo??

Sigurður Geirsson 4.3.2010 kl. 14:00

8 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Ég vil taka það fram að ég er ekki viðriðinn Heimavarnarliðið að ráði.

Og enginn í Heimavarnarliðinu hefur beitt ofbeldi í sínum aðgerðum, enda er það í andstöðu við yfirlýsingu þeirra.

Axel Þór Kolbeinsson, 4.3.2010 kl. 14:02

9 identicon

Komið þið sæl; gott fólk !

Sigurður Geirsson !

Ég má til; að benda þér á, að hérlendis, ríkir byltingar ástand, og piltar, sem þú og þínir líkar, ættuð ekkert að vera að kvaka, um ''lög landsins'', sem eru jú sniðin; að þörfum yfirgangs afla valdastéttarinnar, ágæti drengur.

Þessir; Sýslumanna skriffinnar, eiga einingis skilið, að vera barðir hressilega, fyrir ofríki sitt - sem frekju alla, gagnvart íslenzkri Alþýðu, á sama tíma, og glæpa lýðurinn, innan þings - sem utan, gengur laus, undir vernd sömu Sýslumanna þrákálfa, og annarra velunnarra, hins óréttmæta þjóðsskipulags.

Með; hinum beztu þjóðernissinna kveðjum, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason 4.3.2010 kl. 14:29

10 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Svo vil ég líka minna fólk á að mæta á kjörstað á laugardaginn.

Axel Þór Kolbeinsson, 4.3.2010 kl. 15:12

11 Smámynd: Theódór Norðkvist

Held það sé í lagi að trufla þessa handrukkara spillingarinnar við "störf" sín.

Tilkynning:

Framkvæmdastjóri banka og verðbréfafyrirtækja taldi gengistryggingu ólöglega. Sigar samt pabba sínum (sýslumanni RVK) á lántakendur. Sjá hér og hér.

Theódór Norðkvist, 4.3.2010 kl. 15:59

12 identicon

Ég styð þessar aðgerðir. 

Sigurður, komdu þér niður á jörðina.  Hér hafa öll lög og mannréttindi verið brotin á landsmönnum.  Alþingi hefur lengi vel verið samhuga um að gera okkur landsmenn ábyrga fyrir hruninu.  Fyrri stjórnvöld og þau sem á eftir komu ætluðu ekki að leita sökudólga heldur færa okkur á silfurfati sem greiðslu til fjármagnseigenda fyrir eitt mesta peningarán Íslandsögunnar.  Hvaða lög er verið að verja þegar hér virðast eingöngu gilda ólög?

NEITUM AÐ BORGA ICESAVE FYRIR GLÆPALÝÐINN OG SAMSEKU VINI ÞEIRRA INNI Á ALÞINGI. 

Melur 4.3.2010 kl. 16:02

13 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Lög hafa ekki verið brotin en það má deila um hvort lögin séu á skjön við mannréttindin, það er að segja mannréttindi minnimáttar. Meirimáttar eru í þessu tilliti auðvitað fjármagnseigendur og lánveitendur. (Meiriháttar lesist: fjármálaelítan = ekki amma og afi sem eiga einhverjar krónur til vara fyrir óvæntar uppákomur í ellinni!)

Dæmigerð uppákoma var nú þessa dagana þegar íslenskir laganna þjónar fóru fram á það við sænska að frystar yrðu bankainnstæður gengisskiptablóðsuganna (þessara 4ra íslensku snillinga) í Svíþjóð. Svarið var nei; slíkt athæfi varðar ekki við lög í ESB/Svíþjóð.

Kolbrún Hilmars, 4.3.2010 kl. 16:34

14 identicon

Ég vona þá að heimavarnaliðið verði þessum tiltekna skuldara innan handar og greiði fyrir hann þessar 180 þúsund krónur sem hann þarf nú að greiða vegna framgöngu liðsmanna í dag. Vel gert, ekkert verið að skjóta sig í fótinn með þessu...nei þarna var skuldarinn skotinn í fótinn og var særður fyrir.

 Og svo breytist ekkert fyrir aumingja manninn (fyrir utan að hann skuldar nú auka 180 þúsund) þar sem skuldastaða hans ræðst af því verði sem lífeyrisjóðurinn fær fyrir eignina á almennum markaði.

 Þrefalt húrra fyrir Heimavarnarliðinu!! Held ég sjái bara um mínar varnir sjálfur

Molinn 4.3.2010 kl. 18:48

15 identicon

Vill Molinn útskýra fyrir fávísum hvaða 180 þúsund hann er að tala um?

Theódór Norðkvist 4.3.2010 kl. 19:49

16 identicon

Horfðu á fréttir stöðvar 2 frá því í kvöld, þá skýrist málið

Molinn 4.3.2010 kl. 20:19

17 Smámynd: Stjörnupenni

Oh! Feis á ykkur, Heimavarnar-hálfvitar!!!

Þetta er einmitt ekki það sem íslendingar þurfa á að halda! Illa menntaðir vitleysingar sem skilja ekki hvað er að gerast eða hvers vegna en láta stjórnast af illa ígrunduðum tilfinningum sínum án þess að átta sig á því að þeir gera ekki annað en skaða með aðgerðum sínum! (enda sýnist mér á myndbandinu frá uppboðinu að þetta pakk stígi ekki alveg í vitið).

Skiptið ykkur ekki af málum sem þið hafið ekki vit á!

Stjörnupenni, 4.3.2010 kl. 21:20

18 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég held það hljóti að vera að þessi maður sem bauð á móti lífeyrissjóðnum hafi tekið það upp hjá sjálfum sér frekar en þetta hafi verið aðgerð fyrirfram ákveðin af hálfu Heimavarnarliðsins.

Enda mikil áhætta að bjóða í eign á uppboði þar sem tilboðsgjafinn er alltaf bundinn af tilboðinu og situr uppi með íbúðina ef ekkert móttilboð kemur fram.

Það verður að skipuleggja svona aðgerð mjög vel, enda verið að trufla (því miður) lögvarinn gjörning (nema hugsanlega í uppboðum vegna ólöglegra gengistryggðra lána.)

Verið er að rjúfa friðhelgi heimilisins með því að fara inn í íbúðina og Heimavarnarliðið getur verið skaðabótaskylt gagnvart íbúðareiganda vegna hugsanlegs fjárhagstjóns.

Því verður að vanda vel til verka.

Theódór Norðkvist, 4.3.2010 kl. 22:25

19 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Ég get fullvissað Stjörnupenna um það að það fólk sem ég þekki þarna er vel gefið.  Hvort það þekki allar lagalegu hliðar nauðungarsala veit ég hinsvegar ekki.

Axel Þór Kolbeinsson, 4.3.2010 kl. 22:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Axel Þór Kolbeinsson
Axel Þór Kolbeinsson

Smellið á höfundarmynd til að lesa skilmála athugasemda.

Translate

Translate

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband