. - Hausmynd

.

Símanúmer Heimavarnarliðsins

  • Heimavarnarliðið ætlar að verja heimili fólks fyrir útburði vegna óréttmætra skuldakrafna, með því að hindra aðgang lögreglu ef þarf.
  • Heimavarnarliðið gengur friðsamlega fram í aðgerðum sínum en áskilur sér rétt til að verja hendur sínar.
  • Liðsmenn í Heimavarnarliðinu geta þeir orðið sem eru lögráða, agaðir og styðja markmið þess.
  • Þeir sem vilja fá aðstoð Heimavarnarliðsins geta haft sambandi í síma 841-0551 eða netfangið heimavarnarlidid@gmail.com.

mbl.is Fallist á útburðarbeiðni bankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já heimavarnarliðið minnir alltaf á sig, en minnir mann þó oftar en ekki á naut í posturlínsbúð.

Í þessu máli sem heimavarnarliðið er núna að minna á sig er um að ræða aðila sem skv. því að hafa misst íbúð sína á uppboði í mars 2009 á rætur greiðsluvanda síns að rekja allt aftur til ársins 2007. Þetta sér maður strax þegar maður skoðar bara hvað svona innheimtuaðgerðir taka almennt langan tíma.

Sem sé nú er heimavarnarliðið að bjóða þjónustu sína vegna aðila sem lenti í greiðsluerfiðleikum í bullandi uppsveiflu. Hvaða rétt á að verja í því tilfelli.

Einnig ef við skoðum rétt, þá missti konan eignina á uppboði fyrir ári síðan. Skv. því er Arionbanki réttur eigandi íbúðarinnar. Síðan þá hafa viðræður átt sér stað skv. fréttinni milli hennar og bankans um áframhaldandi búsetu í íbúðinni, sem ekki hafa skilað árangri. Allan þennan tíma hefur hún búið sér að kostnaðarlausu í íbúðinni. Hvaða rétt á að verja í þessu tilfelli.??

Sigurður Geirsson 23.3.2010 kl. 16:43

2 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Heimavarnarliðið er ekki að minna á sig.  Ég er að minna á Heimavarnarliðið.  Hvað fólk gerir við þær upplýsingar sem ég kem áfram er á þeirra ábyrgð.

Axel Þór Kolbeinsson, 23.3.2010 kl. 16:45

3 Smámynd: Jón Rúnar Ipsen

Var það ekki í fréttum um daginn að þetta svokallaða heimavarnalið oltið hækkun á kröfu á hendur uppboðsþola . ?? Skil ekki hvaða rök eru að baki því að fell niður skuldir einskatlínga sem síðan verður svo velt yfir á almenning ?? engin rök á bak við það

Jón Rúnar Ipsen, 23.3.2010 kl. 17:06

4 Smámynd: Baldvin Björgvinsson

Jón R. það var tóm lygi. Heimavarnarliðið bauð ekki í það var bara einhver einstaklingur staddur þarna sem bauð á móti lögfræðingnum. Þar að auki halda þessi rök þín ekki vatni, en það er önnur saga.

Baldvin Björgvinsson, 23.3.2010 kl. 22:59

5 Smámynd: Jón Rúnar Ipsen

Baldvin B verð að segja að enn einu sinni hefur maður  á blogginu sannað fyrir mer að málefnaleg umræð á sér ekki stað hér heldur eitthvað allt annað .

Hvaða rök halda ekki vatni ?? Er það ekki staðreynd að Heimavarnaliðið mætti á uppboð í hafnarfirði þar sem sýslumaður var að bjóða upp eign ekki hægt að mótmæla því  að það gerðist .

Nú eftir stendur að það var boðið gegn lögfræðingi banka og við það hækkaði lokaboð sem hækkaði uppboðsgreiðslur íbúðareiganda þetta er staðreynd.

Og í sambandi við niðurfellingu lán til einstaklinga sem tóku lán í erlendi mynt þá er það ekki vafi það verða almenningur sem munu fá það í hausinn ef þú getur sýnt fram á að svo verði ekki þá hvet ég þig til að gera svo ef ekki þá Ja þá ert þú búinn að gera lítið úr þér ekki mér . 

Jón Rúnar Ipsen, 24.3.2010 kl. 09:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Axel Þór Kolbeinsson
Axel Þór Kolbeinsson

Smellið á höfundarmynd til að lesa skilmála athugasemda.

Translate

Translate

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband