. - Hausmynd

.

Limlestingar kynfæra

Ég vildi óska að þjóðir heimsins tækju sig saman um að banna limlestingar á kynfærum sveinbarna líkt og gert hefur verið með stúlkur.

Það eru engin heilbrigðisrök fyrir þessum ógeðfelda sið en nægileg heilbrigðisrök sem mæla gegn honum, þ.á.m. það að í forhúðinni er gríðarlegt magn taugaenda sem auka nautn karlmanna af kynlífi.

Sýnum nú af við erum jafnréttissinnuð þjóð og þrýstum á um að eyðilegging kynfæra sé ólíðandi fyrir hvort kynið sem er.

 


mbl.is Bannað að banna umskurn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sammála.

Bönnum bann við banni á umskurn!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.10.2011 kl. 09:07

2 identicon

Við erum komin hingað á þessa jörð fyrir ólíkt stærri hluti en að stunda kynlíf. Umskurn drengja er ekki sambærileg við umskurn stúlka og við höfum engan rétt á því að segja heimsins merkustu og elstu þjóð, einu sem er orðin yfir 5000 ára, sem á flesta nóbelsverðlaunahafa í heimi, vel yfir 40% þrátt fyrir að vera vel undir 0,1% mannkyns, flesta vísindamenn sem skipta okkur máli, og bara fyrst við erum að tala hér saman á tölvu, aðalhugbúnaðarframleiðandi heims, þjóð sem ef hún væri ekki til væru vel flestir Íslendingar dánir (því gyðingur fann upp penecilín og ekkert lyf bjargar fleiri mannslífum) , þjóðin sem framar öllum öðrum, ásamt grikkjum , hefur siðað heiminn og kennt honum umburðarlyndi,....þjóðin sem flestir frumkvöðlar og umbótamenn á sviði mannréttinda, femínisma og svo framvegis hafa tilheyrt...allt frá Jesús Kristi til Marx til Gloriu Steinem....þessari yfirburðaþjóð sem er jafnframt ofsóttasta þjóð sögunnar, sem hefur gert heiminum meira gagn en nokkur önnur, hefur enginn maður rétt á að segja til um hvernig hún á að hegða sér. Hæsta greindarvísitala í heimi, meðal Azkenazim gyðingur er með nærri 140 stigi í greind, flestu afreksmennirnir, þó örlítil þjóð sé, flestir siðbóta og umbótamenn og frumkvöðla....Þú getur ekki annað en viðurkennt að þeir hljóta að vera gera eitthvað réttar og betur en við, og þú hafir engan rétt á að skipta þér af þeim. Hitler var nóg, takk!

J 4.10.2011 kl. 10:01

3 identicon

PS: Breska konungsfjölskyldan, þó gentile sé, hefur vit á að umskera öll sín sveinbörn að gyðinglegum sið, með aðstoð professional rabbía á því sviði og hefur gert öldum saman ásamt sumu öðru fyrirfólki. Það skyldi þó aldrei einhver andlegur gróði tengjast þessari athöfn sem jafnvel heiðingarnir hafa áhuga á? Þú getur alla vega ekki borið þetta saman við limlestingar á stúlkum sem gera þeir jafnvel fárveikar alla æfi. Kannski er örlítið minni kynhvöt meðal karlmanna bara góð og æskileg, ef marga má ofbeldishneigð og glæpahneigð karlmanna umfram stúlkur, valdafíkn þeirra og eigingirni. Kannski balancerar þetta út það slæma í karlmanninum.

J 4.10.2011 kl. 10:04

4 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Gyðingar eru ekki þjóð heldur trúarhópur.  Þeir gyðingar sem hafa hlotið nóbelsverðlaun koma frá mörgum mismunandi ríkjum.

Og ég hef nákvæmlega sama rétt á að lýsa minni skoðun á verknaði sem mér finnst villimannslegur, um hvort kynið sem um ræðir.  Það er enginn eðlismunur á umskurði um hvort kynið sem ræðir.

Axel Þór Kolbeinsson, 4.10.2011 kl. 10:09

5 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Sama rétt og hver annar þ.e.a.s.

Axel Þór Kolbeinsson, 4.10.2011 kl. 10:09

6 identicon

Gyðingar! Eins og alltaf......furðulegt þegar maður er ekkki fleiri en ca 15 milljónir í heiminum, ef þú notar frjálslyndu skýringuna á hver er gyðingur það er að segja, ekki satt? http://mbl.is/frettir/erlent/2011/10/04/verdlauna_geimrannsoknir/ Og hefur einhver önnur þjóð lifað í yfir 5000 ár? Nei. Allir hinir eru löngu farnir og horfnir og eru ekki lengur hér. Kína er kannski eini keppinauturinn um úthald...líklega afþví þeir hafa haft vit á því að halda sig í fjarlægð og gera þeim aldrei neitt sem vekur reiði að ofan. Þetta er bara í alvörunni Guðs útvalda þjóð. Þannnig er það nú.

J 4.10.2011 kl. 10:10

7 identicon

Gyðingar eru þjóð, ekki trúarhópur. Vel flestir gyðingar í Ísrael eru trúlausir, og skilgreina sig sem slíka. Gyðingur er sá sem á móður sem er gyðingur. Hvort hann trúi á krishna eða trúleysi, svo framarlega sem hann tekur ekki opinberlega upp aðra trú (en hann má vel tilheyra trúleysingjafélagi...og það eru jafnvel til sér form trúlaus gyðingdóms svo sem reconstructionalist judaism, sem halda öll boð etc, en trúa engu....af þjóðrækni!) þá telst hann gyðingur. Farðu á netið og skoðaðu judaism 101 etc. Gyðingdómur er ekki trú og meirihluti Ísraelsmanna er til dæmis trúlaus, svo er stórhluti gyðinga í bna og evrópu. Þeir eru samt gyðingar, væni, og það er anti-semítismi að ætla að skilgreina annað fólk fyrir það. Þeir vilja kalla sig þetta sjálfir og þá eru þeir það. Þeirra skilgreiningarréttur, ekki þinn.

J 4.10.2011 kl. 10:13

8 identicon

Þetta er menning, elsta og merkilegasta og langlífasta menning heims, ekki einfaldlega trú. Trú er bara lítill partur af þessari menningu og ekki nauðsynlegur partur. Það þarf ekki trúarbrögð til að sjá yfirburði þessa fólks, spurðu bara náttúruna og mannkynssöguna. Þitt eigið líf væri verra hefðu þeir aldrei verið til...og að öllum líkindum styttra því enginn á fleiri afreks menn í læknavísindum en þeir.

J 4.10.2011 kl. 10:14

9 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Ég tek ekki þátt í tröllaslag J.  Bloggfærslan er um umskurði, ekki gyðingdóm.

Axel Þór Kolbeinsson, 4.10.2011 kl. 10:15

10 identicon

Þú hefur engan rétt á að reyna að eyðileggja menningu þessa fólks frekar en Hitler, væni. Láttu það vera. Það fer illa fyrir þeim sem láta það ekki í friði......just check out history.

J 4.10.2011 kl. 10:17

11 Smámynd: Vendetta

Meiri rugludallurinn þessi J. Ofstækið í skoðunum hans minnir óneitanlega á Joseph Goebbels. Og svo heldur hann, að allt sé rétt sem er gert í Bandaríkjunum. Því fer víðs fjarri. Sannleikurinn er að sumt sé ágætt, annað slæmt. Umskurður drengja fellur undir það síðarnefnda.

Ofbeldi og limlestingar gegn börnum eru annars vegar vegna trúarlegra ástæðna og vegna áróðurs frá þeim sem lifa á því að meiða börnin og hins vegar fáfræði þeirra sem verða fyrir þessum áróðri. Umskurður á engan rétt á sér.

Annars finnst mér ótækt að vera að blanda sérstaklega gyðingum inn í þetta, það eru aðrir en þeir sem framkvæma umskurð á drengjum, m.a. múslímar. Og eins og kom fram í þætti Penns og Tellers, þá er þessi siður orðin landlæg plága í USA og varla er meirihluti Bandaríkjamanna heittrúaðir gyðingar eða múslímar. Þessi (ó)siður, sem byrjaði sem misskilin trúarathöfn fyrir þúsundum ára, hefur sem sagt breiðzt út meðal almennings í USA, sem er ekki endilega trúað, en heldur vegna hópþrýstings, að barnaníð af þessu tagi sé eðlilegt. 

Vendetta, 4.10.2011 kl. 10:36

12 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Einmitt Vendetta.  En það má bæta því við að þegar þessi verknaður byrjaði, við upphaf siðmenningar, þá var mögulega ávinningur af þessu; þ.e. aukið hreinlæti.  Þótt ég efist um það sjálfur.  En í dag er engin góð ástæða fyrir umskurði.

Axel Þór Kolbeinsson, 4.10.2011 kl. 10:40

13 Smámynd: Vendetta

Rétt er það, þegar yfirvöld í sunnanverðri Afríku eru að hvetja menn til að láta umskera sig til að hefta útbreiðslu kynsjúkdóma, þá væri alveg nóg að hvetja til aukins hreinlætis, sem er sáraeinfalt.

Auk þess kemur umskurður ekki í veg fyrir útbreiðslu HIV, ekki frekar en heitir bakstrar. Hins vegar kemur persónulegt hreinlæti sennilega í veg fyrir HPV-smit.

Vendetta, 4.10.2011 kl. 10:51

14 identicon

Það er níðingsskapur að skera í kynfæri barna; Þetta á að banna algerlega.

Hver sá sem styður við svona ódæði er ekkert annað en barnaníðingur, brýtur á mannréttindum barna.

DoctorE 4.10.2011 kl. 10:57

15 identicon

Ég hélt að þetta væri vegna þess að sýkingar væru svo algengar undir forhúðinni.  Alveg eins og át á svínum, kjötið varð fljótt slæmt.

Svo fer þetta í trúna.

Umskurður er alveg í fína alveg eins og að sleppa því að borða svínakjöt.  Sama hverrar trúar maður er. 

Geirfugl 4.10.2011 kl. 11:33

16 identicon

Kurteisir læknar (WHO) hafa reynt að benda á, að leghálskrabbamein í konum í Ísrahel er með því hærra sem gerist miðað við fólksfjölda. Á þá hefur verið ráðist af ofsatrúarmönnum,sem miður finnast í öllum trúarbrögðum, þeir rakkaðir niður og sagðir vera að ljúga. Mér finnst það vera ansi umhugsunarvert ef tenging er þar á milli og má ekki skoða vegna öfga konum til góðs. Þetta á að banna, því þetta er ekkert annað en níðingsskapur í nafni rangra hugmynda og trúar. Er algjörlega sammála DoctorE og Vendetta og síðuhöfundi.

Sigurður Kristján Hjaltested 4.10.2011 kl. 12:40

17 Smámynd: Mofi

Að skipa öðru fólki fyrir, að vilja ráða yfir öðrum er ein aðal birtingarmynd illskunnar. Að bara detta í hug að fara banna fólki að fara eftir þeirra samvisku af því að manni líkar ekki hvað það gerir er ógeðfelldur fasismi.

Síðan eru til rannsóknir sem segja að þetta er heilsusamlegt, sjá: Kostir umskurnar, minni líkur á krabbameini

Mofi, 4.10.2011 kl. 12:53

18 Smámynd: Mofi

Sigurður Kristján, þig er að misminna. Það er akkúrat hinsveginn. Leghálfskrabbamein meðal kvenna í Ísrael er töluvert minna en almennt gengur og gerist og menn tengja það umskurn.

Mofi, 4.10.2011 kl. 12:55

19 identicon

Takið eftir því að Mofi vill ráðast að ungabörnum og skera í kynfæri þeirra.. bara vegna þess að Mofi trúir á galdrabók sem segir að galdrakarlinn vilji láta gera þetta. Já Mofi trúir því að galdrakarlinn hafi hannað þetta svona, og svo látið menn skera af hönnun sinni..

Það eru engir kostir við að gera þetta Mofi.. hvers vegna ekki að fjarlægja brjóst, fólk gæti fengið brjóstakrabba...

Þú gerir sama gagn með því að kenna börnum/körlum að þvo á sér tillann mofi; En ég veit að þú skilur þetta ekki vegna þess að þú ert svo blindaður af græðgi í eilíft lí í lúxus að þú ert tilbúinn að skera í ungabörn

Hér er ágætt videó um þennan glæp

http://doctore0.wordpress.com/2011/01/16/the-doctors-a-daytime-talk-show-disaster/

DoctorE 4.10.2011 kl. 12:58

20 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Gott myndband DoctorE.

Axel Þór Kolbeinsson, 4.10.2011 kl. 13:14

21 identicon

Ótrúlegt að verið sé að limlesta og pynta börn á 21. öldinni, og það hjá þjóðum sem eiga að teljast sæmilega upplýstar. Þetta er ekkert annað en afleiðing villutrúarbragða.

Til Mofa og annarra ofsatrúarrugludalla, ef guð hefði viljað láta karlmenn vera umskorna, þá hefði hann skapað manninn þannig.

Þið eruð afar ógeðfelldir einstaklingar sem aðhyllist pyntingar og limlestingar á börnum.

Baldur 4.10.2011 kl. 13:15

22 Smámynd: Mofi

Kristnir trúa því að það er ekki lengur krafa að umskera, ég er ekki umskorinn. Aftur á móti segja rannsóknir það einfaldlega að þetta hafi heilsufarslega kosti, þá aðalega fyrir þær konur sem eru með manni sem er umskorinn. Ég veit ekki til þess að neinn karlmaður sem er umskorin finnist eitthvað að því enda í kringum 60-70% allra drengja í Bandaríkjunum umskornir á spítölum, og í kringum 85% á einkaspítölum.

Mofi, 4.10.2011 kl. 13:25

23 identicon

Ég lít á umskurn eins og að taka hálskirtla úr manneskju eða botnlanga áður en hann verður til vandræða. Afhverju gerum við ekki allt þrennt fyrst þetta verður hvort sem er til ''vandræða'' á endanum? Ég er viss um að ef hálskirtlarnir sæjust utan a hálsinum þá yrði það fljótt tíska að fjarlægja þá. Allar frumur líkamans eiga þann möguleika að breytast í krabbameinsfrumur, hvar á að hætta að skera? Hvað telst gagnslaust og hvað ekki?

Helgi Heiðar Steinarsson 4.10.2011 kl. 13:39

24 Smámynd: Mofi

Helgi, við vitum núna að hálfskirtlarnir og botnlanginn hefur tilgang og ekki gott að fjarlægja þessi líffæri nema góð ástæða sé fyrir því eins og þau eru orðin sýkt, sjá: http://www.answersingenesis.org/articles/tj/v14/n2/vestigial

Mofi, 4.10.2011 kl. 13:47

25 identicon

En það er ekki neinn ávinningur af þessu Mofi.. .þvoðu á þér lallann og hættu að plögga þessari dellu úr Answers in galdrabókinni.
Eða nei, haltu áfram Mofi, þú ert einn helsti óvinur kristni á íslandi, það eru ekki margir sem ausu dellunni úr biblíu svo rækilega yfir fólk og þú gerir.
Carry on

DoctorE 4.10.2011 kl. 13:57

26 Smámynd: Rebekka

AAAH, viljiði hætta að segja UMSKURN!!  Þetta heitir umskurður for crying out loud.  Þegar ég les "umskurn" fæ ég svipaða tilfinningu og þegar einhver dregur neglurnar fast niður eftir krítartöflu.

Nefnifall:  Umskurður

Þolfall: Umskurð

Þágufall : Umskurði

Eignarfall: Umskurðar

Og svo er ljótt að skera í kynfæri ómálga barna.  Ef karlmenn vilja láta umskera sig, þá mega þeir ákveða þann gjörning sjálfir þegar þeir hafa vit til þess.

Rebekka, 4.10.2011 kl. 14:35

27 Smámynd: Mofi

Takk Rebekka :)    Það er miklu meira mál fyrir fullorðinn karlmann að láta umskera sig en átta daga gamla drengi, sem er mjög áhugavert, sjá: http://www.apologeticspress.org/apcontent.aspx?category=13&article=1118

En þegar rannsóknir styðja að konur giftar mönnum sem eru umskornir eru töluvert ólíklegri til að fá leghálskrabbamein?

Mofi, 4.10.2011 kl. 15:29

28 identicon

Mofi segist ekki vita til þess að neinum umskornum karlmanni finnist eitthvað að því að vera umskorinn. Hann hefur þá ekki kafað mjög djúpt enda fyrirfinnast heilu samtökin sem berjast gegn umskurði og líta á þennan gjörning sem leifar af villimennsku fornaldar. Og ekki er þar hörgull á fólki sem finnst illilega hafa verið brotið á sér og menn jafnvel gengið svo langt að undirgangast langtíma- æfingar til að öðlast forhúð sína á ný. Þetta kemur skýrt fram í þætti "Penn and Teller on Circumcision" http://www.youtube.com/watch?v=vLGcqPE7xu0&feature=related

Baðvörður 4.10.2011 kl. 15:49

29 identicon

"Aftur á móti segja rannsóknir það einfaldlega að þetta hafi heilsufarslega kosti, þá aðalega fyrir þær konur sem eru með manni sem er umskorinn."

-Mofi

Það... það þarf ekkert að svara þessu, er það nokkuð? Bara, vá.

Þetta allt er alveg frábært dæmi um hvað trúarofstækisfólk er tilbúið að stunda mikið af lygum og einfaldlega hunsa almenna skynsemi til að beygja staðreyndirnar sér í hag. Orsakasamhengi, Guð minn góður og Jesús Kristur. Ef við gefum okkur nú það að þessar athuganir hafi verið framkvæmdar samviskulega til að byrja með, sem ég efast frekar um, þá koma fram gífurlega margir áhrifsþættir og vakna margar spurningar um mismunandi líferni þeirra sem eru umskurðaðir í þessum löndum. Til dæmis, þeir sem eru ekki umskurðaðir eru líklega fyrir utan trúarfélögin, hvernig er þeirra líferni miðað við hina? Og svo framvegis.

Á endanum gæti ég séð fyrir mér að það séu félagslegir þættir miklu frekar en eitthvað jafn fáranlegt og umskurður sem séu orsökin að baki slíkum afbrigðum. Kannski einn daginn munum við fá áreiðanlegar vísindalegar útskýringar, ef þessi afbrigði eru til staðar yfir höfuð. En líklega mun vera langt þar til við fáum slíka útskýringu, því miður mun trúin einfaldlega 'eitra' hverja tilraun til athugunar á þessum málum.

Kári 4.10.2011 kl. 16:01

30 identicon

Börn sem verða fyrir þessu ofbeldi geta örugglega lögsótt foreldra og alla þá sem taka þátt í þessum viðbjóðslega gjörning.

Ef mamma hefði látið skera mig.. ég myndi kæra, kæra trúarsöfnuðinn í klessu.

Meiri þvælan sem hann Mofi lætur frá sér.. og styður geðveikina með að benda á trúarsíður.

DoctorE 4.10.2011 kl. 16:04

31 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Má ég biðja ykkur að halda umræðunni við umskurðina sjálfa en láta trú, skort á trú og allt þar á milli eiga sig.

Axel Þór Kolbeinsson, 4.10.2011 kl. 16:11

32 identicon

Þessi Mofi ritar: "Það er miklu meira mál fyrir fullorðinn karlmann að láta umskera sig en átta daga gamla drengi"

Ég ætla að leiðrétta þennan hugleysingja. Hið rétta er að það er mikið auðveldara fyrir fullorðna barnaníðinga að misþyrma átta daga gömlu kornabarni sem getur ekki svarað fyrir sig. Auðveldara að pynta barnið út frá forsendum snarbilaðra ofsatrúarmanna.

Þið sem aðhyllist þessar pyntingar eruð sjúkt fólk.

Baldur 4.10.2011 kl. 16:16

33 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Umskurður, hvort heldur er á drengjum eða stúlkum á ekki að líðast.

Sérstaklega ættu strangtrúaðir að vara sig, því þeir eru þar með að eyðileggja verk skapara síns almáttugs og efast um visku hans. Eitthvað sem þeir gætu þurft að standa skil á við dyr síns fyrirheitna himnaríkis.

Hreinlætisafsökunin er auk þess klén, því þá ætti það sama að gilda um aðra líkamshluta - svo sem eyru og nef.

Kolbrún Hilmars, 4.10.2011 kl. 16:21

34 Smámynd: Rebekka

Mér er bara alveg hjartanlega sama þó þetta sé "meira mál" fyrir fullorðna karlmenn að vera umskornir heldur en fyrir vikugömul sveinbörn.  Nútímalæknavísindi geta auðveldlega séð fyrir nægri deyfingu og sótthreinsandi umhverfi fyrir aðgerðina.

Það ógeðfellda við umskurð eins og hann tíðkast í dag er að þarna er verið að breyta líkama barna fyrir lífstíð án þess að þau fái að hafa nokkurt val þar um.   Ég tel það lágmarkskröfu að fólk fái að ráða einhverju um hvað er skorið af þeim.

Ef karlmennirnir eru nægilega trúaðir, þá leggja þeir á sig að fara í umskurð. 

Rebekka, 4.10.2011 kl. 16:26

35 Smámynd: Mofi

Ég benti á rannsóknir sem styðja þetta hérna: Kostir þess að umskera, minni líkur á krabbameini

Get líka bent á aðra grein í Scientific American, sjá: http://www.scientificamerican.com/article.cfm?id=circumcision-penis-microbiome-hiv-infection

Mofi, 4.10.2011 kl. 17:06

36 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Mofi, ég var ekki sérstaklega að sneiða að þér í innlegginu, en þú mátt taka það til þín ef þú vilt.

Mitt sjónarmið er að ef fullorðið fólk vill láta krukka í skrokk sinn með fegrunaraðgerðum eða öðru, þá tel ég það einkamál viðkomandi.

Látið bara börnin í friði.

Kolbrún Hilmars, 4.10.2011 kl. 17:44

37 identicon

Skemmtilegt það Mofi, ef þú lest commentin á greininni sem þú gafst hlekk á, er bent á ýmislegt skrýtið við þessar niðurstöður og rannsakendurnar á bak við þær.

Það sem mér fannst nú skemmtilegast að lesa er það að í sumum löndum af Afríku, heimsálfunni þar sem þessi Grey er mest að 'rannsaka', er HIV algengara meðal umskornra manna.

Sem betur fer hættu þeir að rannsaka í þeim löndum þegar það kom í ljós að niðurstöðurnar þar voru ekki samhæfar fyrri niðurstöðum þeirra. Það væri nú hrikalegt að hafa rangt fyrir sér, eins gott að vísindamenn geta hafnað niðurstöðum sem eru ekki sammála skoðunum þeirra.

Kári 4.10.2011 kl. 18:14

38 identicon

Velflestir gyðingar sem eru umskornir eru það EKKI af trúarlegum ástæðum. Þetta er merki um að tilheyra þjóðinni, sem hefur lifað af ofsóknir annarra þjóða í 5000 ár, en allar þjóðirnar sem hrelldu þá mest (fyrir utan síðustu 100 ár, ...og þær eru nú aldeilis í hnignun!) ...eru horfnar og farnar að eilífu. Það þarf enga heilaga bók (og ég aðhyllist persónulega engin abrahamísk trúarbrögð og trúi ekki á Biblíuna!) til að sjá það að ef pínulítill hópur manna, vel undir 0,1% á meira 40% af öllum mikilvægum nóbelsverðlaunum og hefur aukið lífslíkur manna umfram alla, kannað geiminn og hvað sem er fleira....þá er eitthvað mikið, mikið á bak við þá. Hver sá sem skaðar þetta fólk eða hróflar við því, hann mun hverfa í gleymskunnarhaf og ekki framar vera til, sé það þjóð......og sé það einstaklingur mun komið í veg fyrir það af öflum handan við þennan heim að hann njóti nokkurn tíman sannrar velgengni í lífinu eða geti orðið allt sem hann hefði getað orðið......og jafnvel njóti hann gæfu í lífinu, mun það allt fyrirbý eftir dauða hans og að engu gjört og hann mun ekki eiga neina ávexti hér á jörð....því þetta er þjóðin sem er valin til að leiða mannkynið inn í nýja öld....nýja öld þar sem gamlar trúbækur verða ekki lengur til.

J 5.10.2011 kl. 05:03

39 identicon

Ég endurtek meirihluti gyðinga er TRÚLAUS, hlutfallslega mun stærri hluti þeirra en Íslendinga, þeir eru SAMT umskornir, nema lítið brot af litlum ofstækisfullum marxista öfgavinstri minnihluti.....og samt eru meira að segja flestir slíkir gyðingar umskornir líka. Það er vel yfir 98% af öllum gyðingum umskornir, vel yfir 60% þó trúlaus! (nema mögulega á blaði, ef hann er fæddur í Ísrael, þar sem þó flestir eru trúlausir í raun hlutfallslega). Gyðingar þurfa enga trú til að vera það sem þeir eru. Öflin handan við heiminn spá ekki í mannleg trúarbrögð og takmarkaðan mannlegan skilning, en náttúran og mannkyssagan ljúga ekki. Skoðið allar þjóðirnar sem ofsóttu þá......Allar horfnar! (undanfarin 100 teljast ekki með.....það tekur tíma að gufa upp). Þið sjálf? Þið væruð dauð ef þeir hefðu ekki fundið upp helminginn af lyfjunum sem þarf til að halda ykkur á lífi, og eiga læknisfræðiverðlaunin nóbels ár eftir ár eftir ár eftir ár eftir ár. Hvernig væri smá þakklæti? Þetta er besta þjóð í heimi, sorrý, litla Ísland. En við fáum enn að vera til ef við bara látum þá vera. Öflin handan við jörðina og mennina sjá um það.

J 5.10.2011 kl. 05:08

40 identicon

Já Mofi, skerum af alla líkamsparta sem gætu hugsanlega sýkst.. Þú gætir hugsanlega borað puttanum í rassgatið á þér og svo borðað mat án þess að þvo þér um hendurnar; Best að skera bara puttana af, og já jafnvel hendurnar og augun; Það er jú betra að vera handa og augnalaus í himnaríki í stað þess að vera syndugur í helvíti.

Það var einmitt einn um daginn að plokka úr sér augun í kirkju, algerlega biblískt :)

DoctorE 5.10.2011 kl. 09:06

41 Smámynd: Arnar

Mofi: Að skipa öðru fólki fyrir, að vilja ráða yfir öðrum er ein aðal birtingarmynd illskunnar.

Er engin annar en ég sem finnst þessi athugasemd alveg frábærlega í mótsögn við allt sem Mofi kallinn stendur fyrir.

Samkvæmt orðum Mofa hér að ofan er það birtingarmynd illskunar að fyrirskipa umskurð á drengjum.

Arnar, 5.10.2011 kl. 10:13

42 Smámynd: Mofi

Kolbrún, látt þú bara annara manna börn í friði og önnur samfélög í friði. Ef þú vilt ekki að þitt barn ( drengur auðvitað ) sé umskorið þá sannarlega virði ég þinn rétt en hver ert þú eiginlega til að fara að skipta þér af annara manna börnum? Heimta að gyðingar hætti þeirra siðum sem þeir hafa stundið í meira en þrjú þúsund ár af því að þér finnst eitthvað? 

Kári, þá þarftu endilega að láta þá hjá Scientific American vita hvað snillingurinn þú ert búinn að uppgvöta. Láttu mig vita hverju þeir svara.

DoctorE, af og til í mínum bænum þakka ég Guði fyrir að þú skulir ekki vera kristinn. Ég síðan biðst fyrirgefningar á þessu hugsunarleysi því að auðvitað á ég að óska þér hins besta en það er dáldið erfitt miðað við endalausu móðganirnar og hatrið sem veltur upp úr þér.  Læknar skera burt líkamsparta sem eru sýktir til að bjarga lífi fólks, sem "Doctor" þá ættir þú að vita það.

Mofi, 5.10.2011 kl. 10:38

43 Smámynd: Mofi

Arnar, ég virði rétt fólks til að ákveða sig sjálft en hvet fólk til að gera sem ég trúi að sé rétt.

Mofi, 5.10.2011 kl. 10:40

44 identicon

Alveg er thad merkilegt hvad sumir virdast dýrka gydinga sem einverja ofurthjód.

leifur 5.10.2011 kl. 10:57

45 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Að skipa öðru fólki fyrir, að vilja ráða yfir öðrum er ein aðal birtingarmynd illskunnar.
 
Já, lommér hugsa... hver (samkvæmt þér, a.m.k.) skrifaði heila bók með reglum fyrir fólk að fara eftir? Hver heimtar að þeir sem ekki hlýða honum deyji? Hver fyrirskipar morð, limlestingar og annan óhugnað  til handa þeim sem ekki fara eftir fyrirskipununum? Ef það er birtingarmynd illsku að vilja ráða yfir öðrum, er hann þá ekki illur sem segir "Hann kemur í logandi eldi og lætur hegningu koma yfir þá, sem þekkja ekki Guð, og yfir þá, sem hlýða ekki fagnaðarerindinu um Drottin vorn Jesú."?

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 5.10.2011 kl. 11:47

46 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er athyglisvert hvað sumir hér að ofan eru ákafir talsmenn skoðanafrelsis og sjálfsákvörðunarréttar fólks, en ólmast svo í sínu trúboði að sveigja fólk að sínum skoðunum og sinni trú!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.10.2011 kl. 12:28

47 Smámynd: Mofi

Þetta er góður punktur Tinna og í rauninni það sem deilan milli góðs og ills snýst um, hefur Guð rétt á að gera einmitt þetta, refsa sínu eigin sköpunarverki. Málið er samt að Guð gaf öllum frjálsan vilja til að velja líf með honum eða hafna því og ef þú hafnar Guði þá ertu að hafna lífgjafanum og orsökin er þá að missa lífið.

Mofi, 5.10.2011 kl. 12:43

48 Smámynd: Mofi

Axel, er eitthvað að því? 

Mofi, 5.10.2011 kl. 12:44

49 Smámynd: Vendetta

"... og orsökin er þá að missa lífið."

Mofi, áttu ekki við að afleiðingin er þá að missa lífið?

Vendetta, 5.10.2011 kl. 12:55

50 identicon

Þetta er elsta þjóð heims, þetta er sú þjóð heims sem hefur haft mestan gang á mannkynssöguna, bæði nútíma og seinni tíma, Jesús var gyðingur, Marx var gyðingur, en hei,....Milton Friedman er líka gyðingur...Sama hvert þú snýrð þér, til hægri eða vinstri....og sama til hvaða læknis þú ferð við hvaða sjúkdómi og hvaða lyf þú færð...og akkurat núna þegar þú ert í tölvunni, og mesta hugbúnaðarland heimsins er Ísrael og talvan þín væri ekki hérna í sinni núverandi mynd án þess...bíddu væni.....hver, fyrir utan Guð, skapaði heiminn í kringum þig, amk velflest sem er gott, framþróað og svo framvegis í honum? Og hver er eina þjóðin sem hefur lifað af gleymsku fortíðarinnar í yfir 5000 ár? Afhverju hverfa allar hinar? Afhverju fer sérstaklega illa fyrir þeim sem styggja hana á neinn hátt? Afhverju blómgast þær þjóðir sem skýla henni? Það þarf mann fáfróðan á öllum sviðum, blindaðan af hroka og öfund, til að sjá ekki að ef það er til einhver "ofurþjóð", þá eru það þeir, í miklu raunverulegri merkingu en nein önnur þjóð ætlaði að verða það, því það er enginn hroki í bláköldum, ísköldum sannleikanum sem allir heiðarlegir menn horfast bara í augu við. Líka þeir sem eins og ég eru ekkert sérstaklega trúaðir á Biblíuna. Það þýðir ekki ég afneiti bara mannkynssögunni, sögu vísindanna, sögu mannréttindabaráttunnar, sögu vestrænnar menningar og hreinum og klárum rannsóknum á greindarvísitölu og öðrum vitnisburðum um yfirburði. Hver annar hefur lifað svona lengi? Enginn. Og enginn sem lætur þetta fólk ekki vera, og hættir að segja því fyrir verkum og ráðskast með líf þess á viðbjóðslegan hátt, mun lifa af. Hann mun lifa og deyja til einskis og hverfa eins og allir óvinir gyðinga gerðu. Og það var ekki með eigin mætti og valdi sem þeir sigruðu hvert heimsveldið á fætur öðru! Það er afþví til er réttlæti, og réttlætið líður ekki öfundina! Varaðu þig væni, og komdu vel fram við þetta fólk. Það getur enginn sagt framar þú hafir aldrei fengið viðvörun.

j 5.10.2011 kl. 13:02

51 Smámynd: Mofi

Góður Vandetta, mikið rétt, takk.

Mofi, 5.10.2011 kl. 13:08

52 identicon

Afsprengi kristins velferðarsamfélags sem nýtur nútíma tækni og læknavísinda í lífi sínu........hvers forfeður voru í moldarkofum fyrir 100 árum deyjandi úr hungri og vosbúð...ætlar að fara að segja þeim sem gáfu honum samfélagið sem hann lifir í núna fyrir verkum? Er það ekki frekar steikt? En hver er svo á bak við gyðingana? Já, "Guð" í merkingunni æðsta afl tilverunnar eða hennar æðsti sannleikur, hvað sem þú trúir að það sé. Það skiptir engu máli. Mannkynssagan og staðreyndirnar tala fyrir sig og þurfa engar trúbækur sér til hjálpar um hver það er sem fær hjálp að ofan og er betra að misbjóða ekki.

j 5.10.2011 kl. 13:10

53 Smámynd: Arnar

Svo j.. þú ert að segja að limlestingar á kynfærum ungra drengja sé bara fínasta mál af því að gyðingar séu svo gömul 'þjóð' og hafi haft svo mikil áhrif á gang mankynssögunar.. og allt hitt sem þú taldir upp og ég nenni ekki að endurtaka?

Arnar, 5.10.2011 kl. 13:22

54 Smámynd: Arnar

Mofi, þannig að "skipa öðru fólki fyrir, að vilja ráða yfir öðrum er ein aðal birtingarmynd illskunnar" á ekki við um guðinn þinn sem virðist þó vilja skipta sér af og ráða öllu?

Arnar, 5.10.2011 kl. 13:24

55 identicon

Kæri Arnar. Þú ert í engri sögu til að skipa þessari þjóð fyrir verkum. Hver þykist þú vera? Hvað hefur þú eða þín þjóð gefið þeim? Hvað hafa þeir gefið þér, annað en þetta augljósa, að forfeður þínir hættu að höggva mann og annan út af gaur sem hét Jesús, að þrældómur og öfgastéttaskipting varð úr sögunni út af gaur sem hét Marx, og amma þín var ekki lengur söluvara út af konum eins og Gloriu Steinem, að þú gast lifað fram yfir tvítugt út af lyfi sem heitir penecilin og getur leikið þér í tölvunni út af snillingunum með greindarvísitölu 160+ út í Ísrael, Azkenazim gyðingar hafa meðalgreind kringum 140 og eiga flesta afburðargreinda í veröldinni sem sprengja greindarskalann! Já, væni minn. Hver stendur í þakkarskuld við hvern? Skoðaðu bara mannkynsöguna án öfundar og minnimáttarkenndarinnar systur hennar, og þá sérðu að þessi þjóð, sem hefur lifað við ofsóknir í 5000 ár og á þó næstum 40% af öllum nóbelsverðlaunum, stendur slatti framar þinni eigin sem kom upp úr molarkofunum fyrir sirka 100 árum og vælir út af einni lítilli kreppu, eftir að hafa verið vafin í bómull í áratugi út af gyðinglegum áhrifum svo sem velferðarkerfinu!

j 5.10.2011 kl. 13:36

56 identicon

Guð sagði við Abraham ættföður gyðinga, og mannkynssagan sannar að það rættist (hvort sem þú trúir Guð sé í þessari bók, eða, eins og ég...hefur einhverja allt aðra trú en Biblíuna!).....þá eru þjóðirnar farnar sem ofsóttu þá, farnar og horfnar eftir hátt og mikið fall....eins og bíða mun allra, einstaklinga sem þjóða, sem láta þá ekki vera!

Guð, æðsti sannleikur/kraftur tilverunnar sem ekki býr í bókum einum, sagði við Abraham "Hver sá sem bölvar þér (skilgetnum fyrirheitnum afkomendum þínum, gyðingunum), hann mun bölvaður verða, en hver sá sem blessar þig, hann skal blessun hljóta".

Þetta fellur aldrei úr gildi.

j 5.10.2011 kl. 13:40

57 identicon

http://mbl.is/frettir/erlent/2011/10/05/shechtman_hlytur_nobelsverdlaunin_i_efnafraedi/ Fyrst ég er þegar búinn að birta hér nóbelsverðlaunahafana í geimvísindum í ár. Listinn heldur áfram og áfram. Mogginn nennir ekki að birta alla þessa gyðinga sem eru að bjarga heiminum og koma okkur inn í nýja öld. Gyðingar eiga sirka 40% af nóbelsverðlaunum frá upphafi, sérstaklega duglegir að fá þau í vísindum, læknisfræði og slíkum vísindum, en skara fram úr í hinum líka. Guð gaf þeim gáfurnar, ekki spurning. Þeir eru vel undir 0,1% mannkyns, aðeins 15 milljónir og er það ótrúlega hátt miðað við að það hefur ekki verið murkað eins lífið úr neinum af öfund og hatri og minnimáttarkennd annarra manna sem öfunda þá fyrir andlegt og vitsmunalegt atgefi það sem skapari allrar tilverunnar gaf þeim öðrum mönnum til góðs!

j 5.10.2011 kl. 13:58

58 Smámynd: Mofi

Arnar, það gildir við Guð á þann hátt að maður vill meta hvort að Hann sé raunverulega kærleiksríkur og réttlátur. Aftur á móti þá er ekki beint hægt að reka Guð eða biðja Hann um að segja af sér.

Mofi, 5.10.2011 kl. 14:08

59 identicon

Fleiri verðlaunahafar í ár, þrír gyðingar enn á ný http://www.mbl.is/frettir/taekni/2011/10/03/nobelsverdlaun_fyrir_onaemisrannsoknir/

j 5.10.2011 kl. 14:17

60 Smámynd: Mofi

Fólk hlýtur að geta viðurkennt að gyðingar eru sérstök þjóð og verðskulda að...fá að vera í friði. Fá að hafa sína siði og menningu í friði frá öðrum. Ég hef ekkert á móti því að fólk gagnrýni þá og vilji að þeir breyti sínum siðum en...láta orð duga og leyfa þeim sjálfum að ræða hvort þeir fara eftir þessum ráðum eða yfirhöfuð hlusta á þessi ráð.

Mofi, 5.10.2011 kl. 14:31

61 Smámynd: Arnar

Mofi: Jú jú, það er ekkert mál að reka'nn :)  Virkaði fyrir mig og marga aðra.

J:  Já já, gyðingar hafa afrekað mark merkilegt.. breytir það einhverju um limlestingar á kynfærum barna?

Og ef mér skyldi nú skyndilega detta í hug að gerast gyðingur, hætti ég þá að vera íslendingur ríkisborgari og fer að tilheyra einhverri annari þjóð?

Arnar, 5.10.2011 kl. 14:48

62 identicon

Það tekur mörg ár að gerast gyðingur, að minnsta kosti þrjú, og þú þarft að ganga í gegnum langt og strangt nám og sýna þér sé full alvara og sérst ekkert að fíflast........Þetta er ekki eins og að gerast múslimi eða frelsast, þetta er grafalvarlegt mál. Ef þú nennir að standa í því þá ertu þar með í augum gyðinga orðinn gyðingur, og hefur rétt á að flytja til Ísrael. Afar fáir gerast gyðingar því það er mikil vinna og alvöru nám. Gyðingar stunda ekkert trúboð og trúa ekki að aðrir fari til helvítis og svo framvegis og þurfa því ekkert að standa í því.

j 5.10.2011 kl. 15:37

63 Smámynd: Mofi

Arnar, Guð hættir ekki að vera til og ráða öllu þó að þú segist reka hann :)

Arnar
J
: Já já, gyðingar hafa afrekað mark merkilegt.. breytir það einhverju um limlestingar á kynfærum barna?

Þetta er þeirra siður og við eigum að leyfa þeim að hafa sína siði í friði. Hafa greinilega ekki gert þeim mein.

Mofi, 5.10.2011 kl. 15:38

64 identicon

Til samanburðar. Til að frelsast þarftu yfirnáttúrlega reynslu sem getur verið sekúndubrot. Til að skipta um mótmælenda kirkju þarftu að hringja í þjóðskrá og tala við prestinn. Til að gerast kaþólikki þarftu að stunda létt og yfirborðslegt nám í eitt ár. Til að gerast múslimi þarftu að segja eina setningu, það er öllum sama hvort þú meinir hana, en ef þú síðan stendur ekki við að vera múslimi þá lítur Islam sem svo á að það megi drepa þig. ......Þar sem gyðingur er ekki trúarbragð einfaldlega, heldur 5000 ára gömul fjölþætt menning, þarf að læra til að verða hluti af henni og er alls óskylt mál því að taka upp "trúarbrögð". Þú gætir mögulega fengið að verða gyðingur þó hálf-trúlaus eða lítt trúaður værir, en sýndir fulla alvöru með að vilja tilheyra ættbálknum og fulla hollustu við hann...það hafa margir fengið að gera og mun færri sem ganga inn í þennan hóp eru heittrúar en ekki, ólíkt öllum öðrum trúarbrögðum. Trú ein og sér nægir þér aftur á móti aldrei til að fá að verða gyðingur. Líklega yrði þér hafnað fyrstu þrjú skiptin sem þú bæðir um að fá að vera með, það er gömul siðvenja, en þegar þú kemur í þriðja eða fjórða skipti tækju menn þig fyrst alvarlega. Það er ekki leyfilegt að boða gyðingdóm öðrum og þykir óvirðing við annarra manna trú.

j 5.10.2011 kl. 15:42

65 identicon

Ef rabbíanum myndi svo ekki lítast á þig, teldi að það væri skaðlegt gyðingum að þú yrðir hluti af hópnum, svo sem afþví þú værir geðveikur eða hættulegur, eða hefðir ekki andlega vitsmuni til að skilja hvað þú værir að gera (það er dálítið stórt mál að gerast mögulega ofsóttur og hataður og fá ekki að heimsækja tugi landa ...og enginn kemur sér í þá stöðu nema eitthvað mikið, mikið liggi á baki...nema hann sé svona vitlaus, og vitleysingar því ekki velkomnir, það væri ósanngjarnt þeirra vegna. Það er þó sjaldgæft þeim sem endast í að sækja um sé vísað frá endalaust, en fyrstu þrjú skiptin myndurðu fá nei, það er nokkuð öruggt. Trúskiptingar meðal gyðinga eru líklega sirka jafn fjölmennir og íslenska þjóðin, en ég þori ekki alveg að fara með það, gæti verið þó nokkrum þúsundum fleiri.

j 5.10.2011 kl. 15:47

66 Smámynd: Arnar

Mofi, hefurðu ekki lesið Small Gods? :p

Ýmis fyrirbæri verða til bara af því að nógu margir trúa á það og á sama hátt hætta yfirnáttúruleg fyrirbæri að vera til þegar engin trúir á þau lengur.  Spurðu bara Óðinn.  Ef engin tryði á guðinn þinn væri hann ótrúlega fljótur að gufa upp.

J, sé ekki en hvað allt þetta raus í þér hefur að gera með limlestingar á kynfærum barna.

Arnar, 5.10.2011 kl. 15:57

67 identicon

Heldur J virkilega ad gydingar hafi ekki blandast odrum kyntháttum í gegnum aldirnar eins og adrar thjódir. Flestir thessa nóbelshafa eru ekki hreinir gydingar.

leifur 5.10.2011 kl. 16:05

68 identicon

Sé ekki hvernig maður sem heldur að það sé hægt að "skyndilega" gerast gyðingur eins og þú orðaðir dæmið þitt (þetta er einum of árvökul, gömul og vitur  þjóð til að leyfa neitt stundarbrjálæði í sínum siðum), þegar það tekur mörg, mörg ár og er fyrst og fremst spurning um hollustu við ættbálkinn og þekkingu á því hvað þú ert að gera, og bara þar á eftir trú.....og því gjörólíkt því að ganga bara "skynilega" í eitthvað trúfélag, ....telur sig færan um að dæma um önnur atriði þessarar menningar. Hlutfallslega ótrúlega margir af gáfuðustu mönnum þessa heims sem hafa gert mannkyninu mest gagn hafa verið umskornir og ánægðir með það og umskera sín börn (það gera trúlausir gyðingar líka!!!) Það er kannski ekki tilviljun og þú ert kannski ekki maður til að segja þeim hvernig þeir eiga að hegða sér frekar en að einhver frumskógarbúi frá Amazon geti komið hingað og sagt þér að breyta þínum siðum! Þú hefur engan rétt á því og það hafa nógu margar milljónir af þessari þjóð látið lífið afþví fólk vildi ekki virða tilverurétt þeirra sem fólks, siði þeirra og elstu og merkilegustu menningararfleið veraldarinnar!

j 5.10.2011 kl. 16:06

69 identicon

Það er menningin sem skapar þessa yfirburðamenn, ekki kynþátturinn. Gyðingdómur er yfirburðamenning. Gyðingar trúa ekki á kynþætti og eru af öllum kynþáttum og útlitstýpum. Það kemur málinu ekki við, þeir hafa aldrei haft áhuga á útliti manna og slíku. Þetta er of þroskuð menning

j 5.10.2011 kl. 16:07

70 identicon

Reyndar eiga flestir þessir nóbelsverðlaunahafar ættartölur þúsundir ára aftur í tíman (gyðingar halda svo langar ættartölur) til að sanna tengslin við ættbálkinn og azkenazim gyðingar eru rannsakaðir í enn meira mæli en decode rannsakar Íslendinga, fyrir sömu ástæðu, nefnilega genetíska einsleitni. En það er menningin sem gerir gyðinga það sem þeir eru. Þeir bera alltaf höfuð og herðar yfir nágranna sína, jafnt fyrir austan sem vestan, svo lengi sem þeir fá frelsi til að vera jafngildir borgarar, sem þeir fengu því miður sjaldnar en ekki. Gyðingarnir á Spáni Máranna, sem voru fjarskyldir azkenazim gyðingunum sem við þekkjum betur, voru líka fremstu vísindamenn og fræðimenn þess tíma og staðar. Þannig er það alltaf þar sem þeim er boðið mannsæmandi líf, sama hvað tegund gyðinga um ræðir.

j 5.10.2011 kl. 16:10

71 identicon

blandaðir jú, en samt : http://www.sciencedaily.com/releases/2000/05/000509003653.htm En kynþáttaspekúleringar eru bara fyrir frumstæða menningarheima. Gyðingar hafa boðið aðra velkomna síðan í upphafi (reyndar í litlu magni) og eru þeir þá taldir enn rétthárri en hinir og sem aðkomumönnum ber þeim enn meiri virðing en öðrum.

j 5.10.2011 kl. 16:12

72 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Mofi, svar við svari @ 10:38: Mér finnst nefnilega eitthvað! Mér er uppálagt af mínu kristilega samfélagi að bera umhyggju fyrir náunga mínum. Játa mig að vísu seka um að vanrækja hina fullorðnu, en svo ég vitni í orð frelsarans "það sem þér gerið mínum minnstu bræðrum" þá á ég til að skipta mér af.

Hver ert þú sjálfur að skipta þér EKKI af annarra manna börnum ef þeim er misboðið - kristinn maðurinn?

Kolbrún Hilmars, 5.10.2011 kl. 18:59

73 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Þegar ég skrifaði þessa stuttu færslu í gær átti ég ekki von á að hún fengi alla þessa athygli.

En þrátt fyrir þau skoðanaskipti sem hafa átt sér stað hér hefur skoðun mín á umskurði ekkert breyst. En ef fullorðið fólk vill gangast undir þá lýtaaðgerð sem umskurður er þá verður það að vera þeirra val, rétt eins og með aðrar lýtaaðgerðir. En börn eiga alls ekki að fara í lýtaaðgerðir nema góð ástæða liggi þar á bak við.

Axel Þór Kolbeinsson, 5.10.2011 kl. 19:18

74 Smámynd: hilmar  jónsson

Veistu af hverju þú ert að fá alla þessa athygli Axel ?

Fyrirsögnin: Limlestingar kynfæra. Síðan myndin af þér efst á síðunni með öxina reidda.... Scary, en vert allrar athygli

hilmar jónsson, 5.10.2011 kl. 19:59

75 Smámynd: hilmar  jónsson

Að, hluta til auðvitað. Ekki það að umræðuefnið sé ekki allrar athygli vert.

hilmar jónsson, 5.10.2011 kl. 20:13

76 Smámynd: hilmar  jónsson

Æ, nú er ég búinn að koma mér í bobba.....

hilmar jónsson, 5.10.2011 kl. 20:14

77 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Bíddu bara þangað ég kem með exina í heimsókn hilmar... eða fallexi eins og Pen og Teller ætluðu sér að nota á Ron Jeremy. 

Axel Þór Kolbeinsson, 5.10.2011 kl. 20:27

78 Smámynd: hilmar  jónsson

Ég biðst griða..

hilmar jónsson, 5.10.2011 kl. 22:18

79 Smámynd: Vendetta

Ég veit ekki hvers vegna Penn & Teller ættu að nota fallexina á Ron Jeremy, því að hann er þegar umskorinn. Er það ekki annars?

Hlýtur að vera leiðinlegt fyrir Ron að vera svona vel ... öh ... búinn, klámmyndastjarna, en aldrei fá neina nautn vegna umskurðarins. Hefur enga tilfinningu í honum. Eins og úrsmiður sem vinnur við úraviðgerðir með þykka ullarvettlinga á höndunum.

Það má því segja, að karlmenn meðal Bandaríkjamanna, gyðinga og múslíma séu alvarlega fatlaðir hvað þetta varðar. Gætu alveg eins látið skera hann af með öllu. Ts ts ts ...

Vendetta, 5.10.2011 kl. 22:33

80 Smámynd: Mofi

Vemdetta, þeir sem hafa verið umskornir njóta alveg kynlífs alveg eins og þeir sem eru ekki umskornir.

Arnar, tilvist Guðs veltur ekki á því að mannkynið trúi á tilvist Hans.

Mofi, 6.10.2011 kl. 09:53

81 Smámynd: Vendetta

Ég get ekki séð neinn mun á því sem J skrifar um gyðinga annars vegar og hins vegar því sem nazistarnir og KuKluxKlan sögðu um yfirburði aríska kynstofnsins og það sem islamistar hafa sagt um yfirburði múslíma. Sömu öfgarnir. Sama vitleysan.

Það rétta er að allt mannkynið er jafnrétthátt (eða ætti að vera það) óháð kynstofni. Það er engin þjóð, ætt eða kynstofn sem er útvalin af guði. Og ekki ber að gleyma, að engin trúarbrögð eru sannleikanum æðri.

Vendetta, 6.10.2011 kl. 10:08

82 Smámynd: Vendetta

Annars er það furðulegt með innlegg þessa J eða j. Alltaf þegar skráðir bloggarar skrifa athugasemdir, þá er linkur á bloggsíðu þeirra. Þegar óskráðir skrifa athugasemdir, þá stendur IP-tala skráð og bloggsíðueigandi getur þá séð IP-töluna.

Í tilfellinu J er hvorugt og ólíklegt að Axel Þór hafi stillt það þannig. Gæti J verið starfsmaður ritstjórnar blogg.is og skrifar hér sem net-tröll (troll)? Ef svo er, þá gæti þessi athugasemd hér orðið mín síðasta.  

Vendetta, 6.10.2011 kl. 10:17

83 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Reyndar stillti ég það þannig Vendetta.  Persónuvernd og tjáningarfrelsi eru málefni sem ég er harður á.

Ef þú smellir á höfundarmyndina mína efst á síðunni kemur þetta fram.

Axel Þór Kolbeinsson, 6.10.2011 kl. 10:20

84 identicon

Þetta er gjörólíkt mál því gyðingar eru ólíkt nazistum og islamistum ekki að skipta sér af öðru fólki, þeir banna meira að segja að boða sína eigin trú. Og þeir líta ekki á sig sem kynþátt, heldur sem þjóð sem Guð útvaldi á sínum tíma því hún var aumust allra þjóða, fátækust og vesælust, til að sýna þjóðum heimsins leiðina framávið...og það hafa þeir svo sannarlega gert. Þetta er bara mannkynssagan og vísindasagan, ekki hjátrú og hindurvitni. Trúarbrögðin voru skrifuð utan um ákveðinn sannleika sem er þeim æðri og þau segja ekki alla söguna. Ég aðhyllist engin trúarbrögð af gyðinglegum uppruna, en hef samt þann heiðarleika að viðurkenna sannleikan um hlutverk og eðli þessarar elstu, ofsóttustu, merkilegustu og duglegustu þjóðar heimsins. Þeirra útvalning er til hjálpar mannkyninu í heild sinni, hún þjónar síst af öllu þeim sjálfum, eins og sagan sýnir. Þeir gáfu okkur penicilin, Einstein og svo framvegis...hinir gáfum þeim að hrekja þá úr landi, brenna á báli, myrða þúsundum saman öld eftir öld, og margan hrylling nálægt helförinni löngu áður en það mesta grimmdarverk var svo framið. Nú er komið nóg! Sýnum smá þakklæti og mennsku til tilbreytingar!

j 7.10.2011 kl. 12:27

85 identicon

Höfum frekar áhyggjur af okkar eigin börnum. Að gata eyru og slíkt eykur líkurnar á HIV smiti (ekki grín, HIV hefur smitast með að skiptast á eyrnalokkum og fleiri sjúkdómar). Það var byrjað að gata eyru stúlka af sömu ástæðu og farið var að brennimerkja nautgripi og eyrnamerkja sauðfé, þetta var tákn um að þær væru "eign" þess sem gataði eyru þeirra. Skoðum frekar uppruna og eðli þeirra hefða sem við sjálf samþykkjum sem eðlileg sem sem samfélag, frekar en skipta okkur af öðru fólki! Það er betra að líta í eigin barm! Af nógu er að taka og við vorum ennþá verri í gamla daga!

j 7.10.2011 kl. 12:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Axel Þór Kolbeinsson
Axel Þór Kolbeinsson

Smellið á höfundarmynd til að lesa skilmála athugasemda.

Translate

Translate

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband