. - Hausmynd

.

Föðurlandssvikarar og skítapakk.

Það mætti mér óvenjuleg sjón þegar ég skrapp út í smók í morgun.  Nágranni minn er skrifstofa Samfylkingarinnar, en þar hefur verið krotað á veggi Föðurlandssvikarar annars vegar og Skítapakk hinsvegar.  Það fer ekkert á milli mála hverjum skilaboðin eru ætluð.

Nú veit ég ekki hvenær þetta hefur verið skrifað, því undanfarið hef ég ekki farið þarna megin við húsið til að reykja, vindáttin hefur gert það að verkum að aðrar hliðar eru betri.  Ekki ætti þó að vera meira en tvær vikur hámark sem þetta hefur staðið.

En myndir segja meira en þúsund orð.  Ég biðst afsökunar á lélegum myndgæðum, en myndirnar tók ég á farsímann minn. Smellið á myndirnar til að sjá þær í fullri stærð.

200909161131_052.jpg

200909161132_053.jpg

200909161132_054.jpg

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ég gerði þetta ekki!

Guðmundur Ásgeirsson, 16.9.2009 kl. 12:46

2 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Ekki ég heldur, þótt það sé bara léttur milliveggur sem aðskilur mig frá rými Samfylkingarinnar.

Axel Þór Kolbeinsson, 16.9.2009 kl. 12:47

3 identicon

Ég hefði gert þetta með skærrauðu, stærri stöfum og á fleiri stöðum

Anna Grétarsdóttir 16.9.2009 kl. 13:22

4 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Skærrautt hefði í það minnsta komið betur út á mynd.

Axel Þór Kolbeinsson, 16.9.2009 kl. 13:23

5 identicon

Orð að sönnu, en stundum má satt kjurt liggja.

S.Á. 16.9.2009 kl. 13:35

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Gerði þetta ekki en skil vel þann föðurlandsvin sem gerði þetta !

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 16.9.2009 kl. 13:47

7 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Ætli hálf þjóðin skilji þetta ekki vel?  Allaveganna hef ég tvöfalda ánægju af því að fara út að reykja núna.

Axel Þór Kolbeinsson, 16.9.2009 kl. 13:51

8 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Ég skal ekki neita því að á stundum hefur mér dottið þetta sama í hug og jafnvel látið detta út mér eitthvað í þessa áttina. Bæði í ræðu og riti.

Eignaspjöll eru hinsvegar alltaf ámælisverð og mér þykir það uggvænlegt þegar fólk er farið að gleðjast yfir skemmdarverkum.

Emil Örn Kristjánsson, 16.9.2009 kl. 14:08

9 Smámynd: Páll Blöndal

Þetta var víst geðsjúklingur.
Hann fékk lyfin sín eftir þetta og er bara slakur núna.

Páll Blöndal, 16.9.2009 kl. 14:12

10 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Ég get bara ekki annað gert en að hafa lúmskt gaman af þessu, þótt ég hefði seint skrifað þetta sjálfur.

Þetta krot er þó ólíkt auðveladara að ná af heldur en málningaslettur þar sem þetta er greinilega gert með tússpenna.  Líklega er nóg að skrúbba bara vel.

Axel Þór Kolbeinsson, 16.9.2009 kl. 14:13

11 identicon

Má líklega deila um hvort þetta geti flokkast undir skemmdarverk...

Anna Grétarsdóttir 16.9.2009 kl. 14:33

12 Smámynd: Rauða Ljónið

Mér finnst ekki falllegt að ráðast með þessum hætti á greindarskertfólk.

Rauða Ljónið, 16.9.2009 kl. 14:44

13 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Axel Þór Kolbeinsson, 16.9.2009 kl. 14:57

14 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Ha

Æi ekki gera mér þetta. Afhverju ertu að kjafta frá? Ég skrapp þarna eina nóttina og skellti þessu á. Pissaði utan í vegginn svona með.................................

Ég hef nú lúmskt gaman af þessu.

Guðni Karl Harðarson, 16.9.2009 kl. 15:13

15 identicon

Æ, ég er nú lítt hrifin af skemmdarverkum í dag, hvort að það sé tússpenni eða málningarfata. Ég skil samt algjörlega reiðina sem að viðkomandi ber til Samfylkingarinnar.

Dóra litla 16.9.2009 kl. 20:04

16 identicon

Hér höfum við ekki samfylkingu heldur Alþýðubandalag en það er tómt það vantar alþýðu.Hún flúði flokkinn þetta er orðin þorrablótsklúbbur Bubbana og annara snobbhænsnfugla

Síldarkóngur SVN 16.9.2009 kl. 20:38

17 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Þorrabandalag auðmanna?

Axel Þór Kolbeinsson, 16.9.2009 kl. 20:47

18 identicon

ja hérna , er u þið ennþá að trúa á jólasvienn  , þessi kona er bara ekkert við hæfi , hún getur og gat ekki verið leiðtogi .

samfylkingin er ekkert betra en XD menn ...erum (íslendingar ) án leiðtoga , því miður .ekki einu sinni  SJS , hann er bara góður á móti , gagnlaus jafnvelvondur í stjórn.

barbatof 16.9.2009 kl. 22:42

19 identicon

Fyrir mér eru þeir sem standa hjá og láta sér vel líka rétt aðeins skömminni skárri en skemmdarvargarnir sjálfir. Svona hegðun er engum málstað til framdráttar, nema e.t.v. þeim málstað sem unnið er gegn.

Andrés Björgvin Böðvarsson / bakemono 16.9.2009 kl. 23:03

20 Smámynd: Anna Margrét Bjarnadóttir

Þetta hefði þurft að standa með breiðum rauðum stöfum.....Blóði þjóðarinnar!!!!!  Þessir landráðsmenn sem ætla sér að koma í veg fyrir að leiðrétta heimilislánin!!

Anna Margrét Bjarnadóttir, 17.9.2009 kl. 01:22

21 identicon

Heill og sæll Axel Þór; æfinlega - sem og, þið önnur, hér á síðu !

Þó; þorri okkar sveitunga, sé ærlegt og skikkanlegt fólk, að upplagi, er því ekki að neita, að finna má; vafalaust hér - sem of víða annars staðar, fylgjendur Fjórða ríkisins, á Brussel völlum, Axel.

Samfylkingin íslenzka; er því miður, svona viðlíka hreyfing, og sú norska var, í eðli sínu - hver; fylgdi Vidkun Quisling að málum, þar í Autsurvegi, á sinni tíð.

Varla; til eftirbreytni, íslenzku krötunum - sú samsvörun, eða hvað, gott fólk ?

Með beztu kveðjum; sem áður og fyrri /

Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason 17.9.2009 kl. 02:01

22 identicon

Amma mín blessunin, sagði að altaf skildi maður segja satt. Og það reyni ég svo sannarlega að heiðra. En átti samt engann hlut að máli þarna.

Arnór Valdimarsson 17.9.2009 kl. 03:08

23 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

barbatof.  Ég trúi ennþá á jólasveina og veit að það eru í það minnsta 20 slíkir á alþingi okkar.  Annars er ég sammála þér um leiðtogaleysið.

Andrés, ég er þá skömminni skárri.  Ég er nokkuð viss um að þetta krot hefur máðst tölvert af í rigningunni í nótt, þannig að ekki er skemmdarverkið mikið.  Ég á samt enn eftir að kíkja á vegginn.

Anna Margrét.  Eins og ég sagði fyrr þá hefði rautt í það minnsta komið betur út á mynd.

Óskar kæri sveitungi.  Þetta kom mér töluvert á óvart, sérstaklega þear maður hugsar til þess að fáni Samfylkingarinnar fékk að blakta óáreittur í tvo mánuði eða svo eftir kosningar.

Arnór.  Sannleikurinn er sagna bestur.

Axel Þór Kolbeinsson, 17.9.2009 kl. 08:30

24 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Andrés. Enginn að mæla svona verknaði bót. Hinsvegar er ég þó viss um að enginn af okkur hér gætum nokkruntímann framkvæmt svona, þá má hafa lúmskt og grátt gaman að. Enda engin skemmdarverk unnin. Eða þá í allra minnsta mjög lítil.

Hinsvegar reikna ég með að einhver unglingurinn hafi gert þetta í einhverju hugsunarleysi, eða á fylliríi!?

Guðni Karl Harðarson, 17.9.2009 kl. 14:57

25 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Já Guðni, líklegast hafa þetta verið unglingar.  Þeir eru töluvert á röltinu hérna framhjá um helgar.

Axel Þór Kolbeinsson, 17.9.2009 kl. 15:21

26 Smámynd: Heimir Tómasson

Það er samt merkilegt til þess að hugsa að Samfylkingin, sem öllu átti að bjarga eftir kosningar hefur áunnið sér það til frægðar að hafa komið megninu af þjóðinni upp á móti sér á töluvert skemmri tíma heldur en jafnvel Sjálfstæðismenn reiknuðu með.

Spes. Eða?

Heimir Tómasson, 18.9.2009 kl. 06:34

27 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Það sem mér finnst enn meira spes Heimir, er að þrátt fyrir þetta mikla "hatur" á Samfylkingunni þá hafa þeir lítið dalað í fylgi ennþá.

Axel Þór Kolbeinsson, 18.9.2009 kl. 08:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Axel Þór Kolbeinsson
Axel Þór Kolbeinsson

Smellið á höfundarmynd til að lesa skilmála athugasemda.

Translate

Translate

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband