. - Hausmynd

.

Framboð til stjórnlagaþings

Ég er víst einn af þeim hátt í 500 einstaklingum sem býð mig fram til stjórnlagaþings.  Ég mun skrifa eitthvað ítarlegra um mínar helstu áherslur á næstu dögum, en áhugasamir geta litið yfir eldri færslur.  Ég setti tengla á þær færslur sem ég tel eiga mest við stjórnarskrá hér í flokk til hægri sem heitir Tengt stjórnlagaþingi.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Til hamingju með framboðið! Hér hefst undirbúningurinn:

Í stuttu máli, hverjar eru áherslur þínar í grundvallarstjórnskipan?

Viltu breyta einhverju varðandi forsetaembættið? Hverju?

Muntu beita þér fyrir breytingum á kjördæmaskipan? Hvaða?

Hvað með rétt fólksins til þjóðaratkvæðis um mikilvæg mál?

Muntu beita þér fyrir persónukjöri til Alþingis?

Viltu sjá einhverjar aðrar breytingar á kosningafyrirkomulagi?

Hvaða áherslur hefurðu um aðskilnað ríkisvaldsins, t.d. hvað varðar löggjafarvald, framkvæmdavald, dómsvald, peningavald o.s.frv.

Viltu fjölga dómsstigum, koma á sérlagadómstóli sbr. landsdóm eða stjórnlagadómstól, eða gera aðrar breytingar á dómskerfinu?

Hvað viltu gera við þjóðkirkjuna?

Í stuttu máli, hvaða áherslur hefurðu í mannréttindamálum?

Hverjar eru áherslur þínar varðandi réttindi einstaklinga gagnvart öðrum lögaðilum sem ekki eru einstaklingar? 

Hvað með réttindi annara lífvera t.d. dýra, plantna, sveppa, vírusa og jafnvel vitsmunalífs af öðrum uppruna en mannlegum?

Muntu beita þér fyrir þjóðareign náttúruauðlinda?

Muntu beita þér fyrir þjóðareign á lánstrausti, og jafnframt hverju öðru því sem kann að verða notað sem gjaldmiðill eða annar óáþreifanlegar áhrifavaldur í samfélaginu í framtíðinni?

Hvað á stjórnarskráin að segja um fyrirkomulag peningamála?

Hvað með réttindi fólks til að búa við efnahagslegan stöðugleika, jöfnuð og velferð?

Eitthvað annað um efnahagsmál sérstaklega?

Eitthvað fleira sem þú vilt að komi fram?

 

Endilega taktu þér góðan tíma til að velta þessu fyrir þér og ekkert endilega að svara öllu í einu, stundum er betra að hugsa um hlutina afmarkað og stundum í víðara samhengi. Þetta eru samskonar spurningar og ég myndi spyrja aðra frambjóðendur ef ég vildi móta mér afstöðu til þeirra, og því held ég að það myndi gagnast þér að vera tilbúinn að svara a.m.k. einhverjum þeirra. (OK kannski ekki endilega um réttindi geimvera en það var líka bara djók ;)

Gangi þér svo sem allra best í framboðinu!

Guðmundur Ásgeirsson, 20.10.2010 kl. 03:47

2 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Frábærar spurningar.  Ég ætla að leyfa mér að svara þeim í nokkrum pistlum síðar ef ég má.

Varðandi kosningafyrirkomulag (þ.m.t. persónukjör) þá hef ég ákveðna hugmynd að því sem má fræðast um hér.

Axel Þór Kolbeinsson, 20.10.2010 kl. 08:24

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það var nákvæmlega meiningin, að láta þig hafa efnivið í pistla sem þú getur skrifað til að kynna þig og þín stefnumál fyrir kjósendum, því ég er sannfærður um að þegar fólks les um þau munu margir sjá að þú ert skynsamur og góður valkostur til stjórnlagaþings.

Guðmundur Ásgeirsson, 20.10.2010 kl. 19:10

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Axel, sem stuðningsmaður þinn í þessu framboði, þætti mér gott ef þú gætir útbúið kynningarblað með helstu áherslum, t.d. á A4 blaði, sem mætti dreifa til þess að vekja athygli á framboði þínu. ?

Kolbrún Hilmars, 21.10.2010 kl. 12:06

5 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Alveg sjálfsagt mál Kolbrún.  Ég fer í það um helgina ásamt því að svara spurningum Guðmudar ítarlega.

Axel Þór Kolbeinsson, 21.10.2010 kl. 12:09

6 Smámynd: Kolbrún Hilmars

PS. Ég á ekki við prentsmiðjuplagg, heldur tölvuskjal sem ég og aðrir áhugasamir gætum sjálf prentað út og dreift :)

Kolbrún Hilmars, 21.10.2010 kl. 12:12

7 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Að sjálfsögðu.  Enda vil ég ekki að kostnaður við framboðið mitt sé nokkur, hvorki hjá mér né öðrum.  Ég kem þessu fyrir á einhverju pdf-skjali.  Þá er líka hægt að deila því rafrænt.

Axel Þór Kolbeinsson, 21.10.2010 kl. 12:23

8 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

PDF er á góðri leið með að teljast vera "rafpappír"

PDF = Portable Document Format Paper Digital Format ?

Guðmundur Ásgeirsson, 21.10.2010 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Axel Þór Kolbeinsson
Axel Þór Kolbeinsson

Smellið á höfundarmynd til að lesa skilmála athugasemda.

Translate

Translate

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband