. - Hausmynd

.

Spurning um að tala við KNR aftur?

Samkvæmt vef KNR, grænlenska ríkisútvarpsins, þá hafa verið þónokkur tilfelli þar sem Grænlendingar hafa orðið fyrir aðkasti.

 

Efter at kvindens forsvinden blev kædet sammen med de grønlandske besætningsmedlemmer, har der været flere episoder, hvor grønlændere i Island har følt sig utrygge og chikaneret

 

Stor eftersøgning efter islandsk kvinde
mbl.is Grænlensku miðlarnir mistúlka stöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smávægileg leiðrétting á fréttinni og svo nöldur um Ísrael.

Byrjum á því sem ber að leiðrétta: Ísrael lýsti einhliða yfir sjálfstæði þann 14da Maí, 1948 og flest ríki heimsins höfðu samþykkt Ísrael sem ríki (en ekki endilega landamæri þess) fyrir lok áratugarins.

Mörgu palestínsku fólki myndi sjálfsagt með glöðu geði samþykkja landamærin eins og þau voru eftir sex-daga stríðið 1967, en ég mun aldrei samþykkja neitt annað en hugmynd Sameinuðu Þjóðanna frá 1947 sem landamæri. Allar breytingar landamæra upp frá því er land sem Ísrael hefur að mestu tekið með hervaldi.

Gleðilegar hátíðir allra goða.


mbl.is Skellur fyrir stefnu Ísraela
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu

Áhugaverðar hugmyndir sveitarfélagana á höfuðborgarsvæðinu. En þær koma hvorki ríki né vegagerðinni við!

Vegagerðin hefur varið milljörðum í vegaumbætur á höfuðborgarsvæðinu, en með hreint út sagt heimskulegu skipulagi sumra sveitarfélaga hefur þeim tekist að breyta þjóðvegum í innanbæjarvegi eða skipulagt íbúðabyggð upp við þjóðvegi og svo er vælt yfir því að viðkomandi þjóðvegur sé of nálægt og það þurfi að færa veginn.

En sjáið svo til; sama dag og þessi grein sveitarstjóra er birt ásamt viðtali við sveitarstjóra stærsta sveitarfélagsins kemur gagnrýni frá strætisvagnstjórum um breytingar á vegakerfinu í því sveitarfélagi sem hamla verulega núverandi almenningssamgöngum og kosta líklega vel yfir milljarð, sem og gagnrýni þingmanna Reykjavíkur um áhugaleysi sveitarfélagsins um þá þjóðvegi sem liggja innan þeirra marka.

Nei, þótt þessar hugmyndir um bættar almenningssamgöngur séu góðra gjalda verðar, þá verða þær að vera fjármagnaðar af þeim sveitarfélögum sem koma þar að en ekki ríkinu að nokkru leiti.

Það er svo von mín að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu fari í skipulagsvinnu með hugmyndir um nokkurra áratuga framtíðarsýn sem rýrir ekki hlutverk þjóðveganna, sem og að vegagerðin feli sveitarfélögunum í hendur þá þjóðvegi sem eru í raun ekkert annað en innanbæjarvegir.

Ég er búsettur í Reykjavík.


Lélegt hjá SI.

Mér finnst það óskaplega lélegt af SI að bjóða einum flokki utan þings til þessarra umræða en engum hinna sem hafa lýst því yfir að þeir bjóði fram.

En kannski ekkert skrítið þegar maður hugsar til þess hversu mikil tengsl Viðreisn hefur við Samtök atvinnulífsins (sem brotabrot íslenskra fyrirtækja eru hluti af).


mbl.is Vilja spyrja þjóðina um viðræðurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryðjuverk og trúarbrögð.

Það er merkilegt að þegar hryðjuverk eru framin af siðblindingjum í nafni trúar sem eru ekki menningarlega ríkjandi vilja sumir grandskoða alla sem aðhyllast viðkomandi trú, en ef hryðjuverkin eru framin í nafni þeirrar trúar sem eru ríkjandi er litið á verknaðinn eins og hann raunverulega er - verknað siðblindingja sem fara frjálslega með boðskap trúarinnar.

 

Fyrir tveim áratugum voru nokkur ódæðisverk framin af kristnum hópum, flestir í þeirri trú að heimsendir væri í nánd, en engum datt í hug að skoða „kristna Íslendinga“ og hvort þeir hefðu átt samlyndi með því fólki.

http://en.wikipedia.org/wiki/Branch_Davidians

http://en.wikipedia.org/wiki/Aum_Shinrikyo

http://www.pewforum.org/2014/01/14/religious-hostilities-reach-six-year-high/

http://en.wikipedia.org/wiki/Christian_terrorism


mbl.is Spyr um rannsóknir á múslímum á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bárðarbunguaskjan

... er stór.

bb-rvk.jpg

Upplýsingar fengnar af vef RÚV og kort af vef já.is

Ég er ekki að reyna að hræða neinn.  Mig langaði bara að setja stærð öskjunar í samhengi sem ég skil.  Óróinn og skjálftarnir eiga sér ekki stað í öskjunni.


mbl.is Óvissan mikil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppáhalds Eurovision-lögin mín í ár

Hér fyrir neðan eru 5 uppáhaldslögin mín í ár.  Ekki endilega þau lög sem ég held að muni standa sig best.  Í engri sérstakri röð.

 

 

 

 

 

 

Og svo að síðustu lög sem kveikja á einhverju í mér, en ná ekki í topp 5.

 

 

 

 

 


Ekki láta matreiddar myndir villa um fyrir ykkur.

Ég ætla mér ekkert að prédika eða neitt svoleiðis, og hafði ekki hugsað mér að snúa til baka úr bloggfríi strax.  En myndir eins og sú sem fylgir þessarri frétt er eitt af því sem fékk mig til að blogga í upphafi.

Mig langar bara að sýna ykkur hvernig sömu gögn líta út þegar það er farið öðruvísi með þau.

vis.png

vis2.png


mbl.is Styrking krónu skilar sér í lægra verðlagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bið fólk að athuga hvar það býr

Ég vil minna íbúa landsins á það að við búum á rokrassgati út í miðju ballarhafi rétt við heimskautsbaug, með landrekssprungu eftir eyjunni endilangri, hvergi í heiminum meiri gosvirkni, brattar hlíðar og fjöll þaðan sem aur og snjóflóð geta fallið og svo mætti lengi áfram telja.

Ekki láta koma ykkur á óvart þótt landið minni einstaka sinnum á sig.


mbl.is Biðja fólk að huga að híbýlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misskilningur SUS

Án þess að ég ætli nokkuð að taka afstöðu með eða á móti frumvarpi Péturs Blöndal þá verð ég að benda á alvarlegan misskilning eða hugsanavillu SUS og margra annarra sem kristallast svolítið í þeirra eigin yfirlýsingu:

Ungir sjálfstæðismenn vilja standa vörð um rétt þeirra sem sýnt hafa áræði til að fjárfesta í aflaheimildum, tækjum og þekkingu og skapað þannig ómældar skatt- og gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið. Séreignarréttur er besta leiðin til að tryggja sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar til framtíðar og til að tryggja að hún skili sem mestum arði til samfélagsins til langs tíma

Ríkið úthlutaði aflaheimildum í upphafi, en heimild er ekki eign.

Þarf nokkuð að segja meira?  Ef þið skiljið ekki hvað ég er að fara mæli ég með að líta í íslenska orðabók.


mbl.is Hafna frumvarpi Péturs Blöndal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Axel Þór Kolbeinsson
Axel Þór Kolbeinsson

Smellið á höfundarmynd til að lesa skilmála athugasemda.

Translate

Translate

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband