. - Hausmynd

.

Borga ferðamenn ekki skatta?

Ég vissi ekki betur en að ferðamenn borguðu eldsneytisgjöld og virðisaukaskatt rétt eins og íbúar.

 

Að innheimta veggjöld en halda áfram með bensín skatta, eða bæta í, kemur efnafólki á rafmagnsbílum vel en er hörmung fyrir efnalaust fólk sem getur kannski keypt notaðan rafbíl eftir áratug eða svo. 


mbl.is Erlendir ferðamenn verði að taka þátt í veggjöldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er allavega ekki neinn skortur á hugmyndum, sumum löglegum en flestum ólöglegum, þegar kemur að því að auka álögur á almenning. Gaman væri ef þessi hugmyndaauðgi hefði verið fyrir hendi við að leysa áratuga vanda heilbrigðiskerfisins.

Vagn 20.7.2022 kl. 16:02

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Eftir áratug eða svo verður rafhlaðan ónýt.

Efnalítið fólk mun því aldrei geta eignast rafbíl.

Og hvað á svo að gera við allar ónýtu rafhlöðurnar?

Kannski senda þær í geymslu í Svíþjóð?

Guðmundur Ásgeirsson, 20.7.2022 kl. 17:20

3 identicon

Rafbílar kosta reyndar ekkert meira en aðrir bílar í sama flokki.  Þannig eru tvinnbílar ódýrari en nákvæmlega sama tegund af bensínbíl.

Það þarf hins vegar að koma á einhverju gjaldi á rafbíla sambærilegu bensíngjald svo notendur þeirra skili sínu til viðhalds vegakerfisin.

Bjarni 20.7.2022 kl. 17:59

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Bjarni.

Manneskja sem ég þekki var að kaupa Toyota Camry árgerð 1987 á 130.000 kr. Geturðu sagt mér hver við gætum fundið rafbíl í þeim flokki sem kostar ekki mikið meira?

Svo er orðið tímabært að ríkið skili sínu af viðhaldi vegakerfisins, fyrir alla bensínskattana sem við erum löngu búin að borga. Við eigum það einfaldlega inni.

Guðmundur Ásgeirsson, 20.7.2022 kl. 18:07

5 identicon

Skrítið hvað margir telja sig eiga mikið inni hjá ríkinu fyrir að borga skatta. Ég ætti e.t.v. að athuga hvort ég eigi ekki inni nokkra bjórkassa fyrir öll áfengisgjöldin sem ég hef borgað.

Camry 1987 í þokkalegu standi telst fornbíll og færi sennilega vel yfir 130.000

Vagn 20.7.2022 kl. 19:31

6 identicon

Bifreið argerð 1987 gæti virst vænlegur kostur en það á eftir að kosta ansi marga tíkalla í viðhald til að halda skrjóðnum gangandi og koma honum í gegnum skoðun.

Nýir rafbílar eru ekki dýrari, jafnvel ódýrari en nákvæmlega sama tegund af bensínbíl.  Hefur minni viðhaldskostnað þar sem engin er vélin, Engin gírkassiskiping, bara áfram og afturábak.  Hvað haldið þið að skrjóður frá 1987 hafi kostað eiganad í viðhaldi í 35 ár?

Og já Vagn hin vegalausi fyrir bensíngjaldið og bifreiðgjöldi + virðisaukan af kaupverði bílsins þá á ég það inni hjá ríkinu að halda við vegakerfi landsin.  Bnotendur eiga mun minni kröfu á viðhaldi vegakerfis enda ekkert lagt til viðhaldskostnaðar.  Ekki ertu bara rétttrúnaðarriddari heldur lúbarinn skattgreiðandi sem ekki þorir að gera kröfum um að fá eitthvað til baka.

Bjarni 20.7.2022 kl. 19:49

7 identicon

Notendur rafbila hafa ekkert lagt til viðhaldskostnaðar vegakerfisins átti þetta að vera.

Bjarni 20.7.2022 kl. 19:53

8 identicon

Þannig að þú telur kostnað heilbrigðiskerfis, þyrlusveitar og löggæslu eigi að vera borgað af einhverjum öðrum. Vegakerfið er langt frá því að vera eini kostnaðurinn sem fellur til vegna bifreiðanotkunar. Og skattarnir þyrftu sennilega að hækka nokkuð til að standa undir honum öllum. Að vera með kröfur byggðar á einhverri ímyndaðri inneign er frekar aumt og órökrétt, sérstaklega þegar frekar auðvelt er að sýna fram á mikla skuld við þjóðfélagið frá komu fyrsta bílsins.

Vagn 21.7.2022 kl. 01:50

9 identicon

Þú ert nú meira sauðnautið, bensíngjaldið var sett á sínum tíma og átti þá alfarið að notast til vegaframkvæmda, en það hefur ekki gengið eftir.  Svo kemur eitthvert fífl og fer að tala um hsilbrigðiskerið í tengslum við bensíngjal.  Kræst! Þvílíkur fábjáni.

Bjarni 21.7.2022 kl. 17:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Axel Þór Kolbeinsson
Axel Þór Kolbeinsson

Smellið á höfundarmynd til að lesa skilmála athugasemda.

Translate

Translate

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband