4.5.2024 | 10:01
Hvern ég styð
Frá því að Helga Þórisdóttir gaf kost á sér hefur mitt atkvæði verið valið. Hún hefur staðið sig gríðarlega vel sem forstjóri persónuverndar, og hefur þekkinguna sem forseti þarf á að halda næstu árin.
Ég hlakka til að heimsækja kosningaskrifstofu hennar og kynna mig fyrir þeim, um leið og aðstæður og heilsa leyfir.
Helgu sem Forseta!
Fyrstu viðbrögð við kappræðunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.2.2024 | 11:02
Hryðjuverkahús
Palestínsk hryðjuverkahús
halda áfram árásum á ísraelskar jarðvinnuvélar
sem eiga engan annan kost en að verja sig
til hins ýtrasta.
Hert öryggisgæsla við Alþingishúsið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.2.2024 | 14:03
Þrjár miðaldra konur
Þrjár miðaldra konur fóru í utanlandsferð og sýndu að utanríkisráðuneytið er offjármagnað.
Bjarni: Allt saman alrangt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2023 | 17:00
Ekki fjallvegur
Alveg óháð mögulegum vegabótum, þá finnst mér ekki rétt að kalla veginn meðfram Reynisfjalli fjallveg og ég hef líka heyrt heimafólk kalla þennan spotta hálendisveg.
Vegurinn liggur hæst í tæplega 120 metra hæð yfir sjávarmáli, en til samanburðar þá eru efstu byggðir höfuðborgarsvæðisins í um 140 metra hæð, vegurinn yfir Hellisheiði 375 metra hæð, vegurinn um Öxnadalsheiði er í um 540 metra hæð, þorpið Reykjahlíð við mývatn er í um 300 metra hæð yfir sjávarmáli og vegurinn yfir Fjarðarheiði liggur í um 620 metra hæð yfir sjávarmáli.
Mér finnst persónulega að vegur verði að liggja í það minnsta í yfir 300 metra hæð til þess að geta talist fjallvegur. Samt mun ég seint getað talað um Hellisheiði sem fjallveg, þar sem ég bjó um tíma í Neskaupstað og keyrði reglulega um göngin í Oddskarði sem liggja í rúmlega 630 metra hæð yfir sjávarmáli.
Reynisfjallsgöng eini kosturinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.12.2023 | 21:59
Það er ýmslegt mögulegt
Það eru margir vægari möguleikar í stöðunni en viðskiptabann og það að rjúfa öll diplómatísk tengsl. Það fyrsta sem mér dettur í hug er að taka upp vegabréfsáritanir fyrir ísraelska ríkisborgara aftur, eða bjóða einhvern ráðamann palestísku ríkisstjórnarinnar í opinbera heimsókn.
Það að sýna samhug, samúð og mennsku þarf ekki endilega að kosta mikið en er það sem almenningur í Palestínu þarfnast mun meir en einhver fjárhagsaðstoð - þótt hún hjálpi. Þannig aðstoð myndi vekja athygli og umtal, rétt eins og þegar við lokuðum sendiráði okkar í Moskvu.
Einhliða aðgerðir Íslendinga myndu engu skila | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.12.2023 | 08:11
Bölvaður aumingjaskapur
Hann er merkilegur þessi aumingjaskapur hjá íslenskum ráðamönnum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ráðamenn fá einhverju kastað í sig, og glimmerið ekki það versta. Skyr, egg og öðrum matvælum hefur oft verið kastað í þau, stundum í hörðum plastumbúðum. Að nota atvik þar sem einhverju sem leikskólakrakki gæti hent í kennara eða foreldri til þess að gera að einhverju öryggismáli og koma á öryggisgæslu fyrir ráherra, lífverði myndu einhverjir kalla það, er eitthvað sem ætti að vera í alfræðiriti sem dæmi um það að gera úlfalda úr mýflugu.
Aumingjaskapur og ekkert annað.
Eins það að fá erlenda diplómata til að tengja mótmælendur við Hamas er lágkúra. Langflestir þeirra þúsund manna sem komu saman í gær hafa enga samúð með því liði, heldur samúð með almennum borgurum í Palestínu.
Herða öryggi á helfararsamkomu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.6.2023 | 19:40
Hálft skref í rétta átt
Þau sem hafa fylgst eitthvað með mér hafa tekið eftir fyrri færslum mínum þar sem ég haf endurbirt tölvupósta sem ég hef sent stjórnvöldum, stjórnmálafólki og félagasamtökum.
Ég bendi áhugasömum á að lesa síðustu færslur.
En til að koma mér að kjarna málsins, þá er næsta skref að opna sendiráð í Kyiv. Því fyrr því betra.
Hálft skref í staðinn fyrir heilt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.3.2023 | 11:14
Varðandi sendiráð rússa og sendiráð okkar í Moskvu.
Eftirfarandi tölvupóstar voru sendir til utanríkisráðuneytisins, valinna ráðherra og þingmanna:
30 Sept 2022, 14:54
Góðan dag.
Ég legg sterklega til að sendiráðið í Moskvu verði flutt til Kænugarðs í Úkraínu, og að það taki yfir málefni Úkraínu frá sendiráðinu í Helsinki, og að Helsinki taki við málefnum rússlands.
Það eru lítil viðskipti við rússa í dag, og á Íslandi eru allt að tífalt fleiri úkraínskir ríkisborgarar er rússneskir. Það má því færa rök fyrir því að hagsmunir Íslands séu meiri í Úkraínu en rússlandi.
24 Feb 2023, 11:51
Góðan dag.
Í tilefni dagsins langar mig að leggja þessa hugmynd um sendiráðin til aftur, ásamt því að hvetja til þess að algert viðskiptabann á rússa sé alvarlega íhugað. Það eru ekki mikil viðskipti milli landanna í dag og algert viðskiptabann sendir mjög sterk skilaboð frá Íslandi til umheimsins.
Eins hvet ég ykkur til að íhuga tillögu Björns Bjarnasonar um að vísa sendiherra rússa úr landi.
Virðingarfyllst
Axel Þór Kolbeinsson
Enn sýna Rússar Íslandi lítilsvirðingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Translate
Translate
Bloggvinir
- Samtök Fullveldissinna
- Rauður vettvangur
- Heimssýn
- Vinstrivaktin gegn ESB
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Börn Íslands
- Félag Fólksins
- Vaktin
- Nýja Lýðveldið Ísland
- Samstaða þjóðar
- Hreyfingin
- Kristin stjórnmálasamtök
- Frjálshyggjufélagið
- Sigurbjörn Svavarsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Ísleifur Gíslason
- Kolbrún Hilmars
- Vilhjálmur Bjarnason Ekki fjárfestir
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Arnþór Helgason
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Frosti Sigurjónsson
- Jón Baldur Lorange
- Haraldur Hansson
- Gullvagninn
- Gunnar Rögnvaldsson
- Valgeir
- Þórhallur Heimisson
- Valan
- Már Wolfgang Mixa
- Jón Lárusson
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jón Ingi Þorvaldsson
- Bjarni Harðarson
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Jón Valur Jensson
- Héðinn Björnsson
- Jón Pétur Líndal
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Kristbjörg Steinunn Gísladóttir
- Braskarinn
- Þór Ludwig Stiefel TORA
- Vilhjálmur Árnason
- Björn Heiðdal
- Haraldur Baldursson
- Ólafur Björn Ólafsson
- Anna Karlsdóttir
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Gregg Thomas Batson
- Einar Björn Bjarnason
- Guðni Karl Harðarson
- Andrés.si
- Rafn Gíslason
- Sigurlaug B. Gröndal
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Guðrún Markúsdóttir
- Hinrik Þór Svavarsson
- halkatla
- Davíð S. Sigurðsson
- Umrenningur
- Kristín Magdalena Ágústsdóttir
- Guðmundur Karl Karlsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Vefritid
- Birgitta Jónsdóttir
- DÓNAS
- Heimir Tómasson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Sæmundur Bjarnason
- Helga Þórðardóttir
- Sigurjón Páll Jónsson
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Elle_
- Himmalingur
- Blogblaster
- Sigurður Sigurðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Guðni Þór Björnsson
- molta
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- GK
- Arinbjörn Kúld
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Sævar Guðbjörnsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Þórður Björn Sigurðsson
- Baldur Hermannsson
- Aron Ingi Ólason
- Ólafur Elíasson
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Sigrún Einars
- Birgir R.
- Jón Þór Ólafsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Grétar Eiríksson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Gústaf Adolf Skúlason
- Jón Valur Jensson
Nýjustu færslur
- Hvern ég styð
- Hryðjuverkahús
- Þrjár miðaldra konur
- Lífsrými
- Bibi
- Ekki fjallvegur
- Það er ýmslegt mögulegt
- Bölvaður aumingjaskapur
- Hálft skref í rétta átt
- Varðandi sendiráð rússa og sendiráð okkar í Moskvu.
- Rúmlega fjögur andlát hverja viku.
- Sjöundi mánuður stríðsglæpa en fátt um mótmæli á Íslandi
- Það þurftu sex að líta á mig í gær
- Loksins eru Íslendingar að rumska
- Borga ferðamenn ekki skatta?
Tenglar
Mínir tenglar
- Pólitískur áttaviti politicalcompass.org
- Skuggaþing Taktu þátt í þingstörfum skuggaþings.
- Icesave fyrir dómstóla
- sprword.com Síða sem er full af ýmsum fróðleik.
- aso brain games
- Free-Europe
- No2EU - Yes to democracy