. - Hausmynd

.

Harðfiskur?

Greinilegt að blaðamaður mbl.is þekkir ekki til fiskvinnslu.  Þetta er enginn harðfiskur, þetta er flattur og saltaður þorskur.  Algjör lúxusmatur.


mbl.is Heildaraflinn jókst um 27%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í minni sveit hét þetta saltfiskur.

Hörður Már Karlsson 13.3.2009 kl. 09:47

2 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Sama hér.  Ég vann í saltfiski á árum áður.  Algjört lúxusfæði að ég tali nú ekki um kinnar og gellur.

Axel Þór Kolbeinsson, 13.3.2009 kl. 09:52

3 identicon

ég hló einmitt þegar ég las að undir myndinni stóð harðfiskur, menn ættu að kynna sér málin aðeins betur... hehe

Atli Jóhann Guðbjörnsson 13.3.2009 kl. 10:17

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

saltfiskur er það - hvernig haldið þið að framtíð íslands sé með þingmenn sem flestallir hafa aldrei unnið nokkurn skapaðan hlut - þetta fólk er í dag sem og undanfarin ár að stýra landinu - mæla og meta hluti sem þeir hafa ekki nokkra þekkingu né reynslu á - er þetta íslandi í dag.

Annars finnst mér gleymast að það eru verðmætin sem og það sem eftir situr en ekki endilega þau tonn sem upp úr sjó koma

hafið ljúfar stundir

Jón Snæbjörnsson, 13.3.2009 kl. 10:25

5 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Alveg rétt hjá þér Jón um þingmennina.  Á Alþingi ætti að vera þverskurður þjóðarinnar sem sæi um að semja okkar lög, og framkvæmdavaldið (þ.e. ráðherrar) aðskilið frá því.

Axel Þór Kolbeinsson, 13.3.2009 kl. 10:32

6 Smámynd: Sigurbjörn Svavarsson

Þetta endurspeglar líka hvernig blaðamannastéttin er orðinn fjarri mannlífinu. Þetta er aðeins brot af því sem maður tekur eftir. Það vantar oft meiri snerpu og meiri gagnrýni í verk blaðamanna. Þetta er jú fjórða valdið og besta aðhaldið gegn valdaklíkum (meðan þær eiga ekki fjölmiðlanna.)

.. svona hugleiðing.

Sigurbjörn Svavarsson, 13.3.2009 kl. 11:10

7 Smámynd: Ísleifur Gíslason

Gott að hafa þig á vaktinni Axel og takk fyrir kveðjuna

Ísleifur Gíslason, 14.3.2009 kl. 16:23

8 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Enn eitt dæmið um það hvað fólk getur verið fávíst um undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar

Guðrún Sæmundsdóttir, 16.3.2009 kl. 22:45

9 identicon

mér finnst að umsóknarskilyrði á þing ætti að vera amk. hálft ár á sjó og hálft í sveit. þá færi kannski eitthvað almennilegt að gerast á þessu landi.

sigrún 18.3.2009 kl. 21:59

10 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Andsk...  Þá kemst ég bara hálfur inn

Axel Þór Kolbeinsson, 18.3.2009 kl. 22:00

11 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Axel hefur svo margt að bjóða að hann á erindi inná þing! En ég uppfylli þessi skilyrði Sigrúnar þ.e ég fór snemma á sjó með foreldrum mínum aðeins 5 ára, og svo vann ég í fiski sem unglingur og var í sveit á sumrin. Sigrún á ég ekki erindi á þing?

Guðrún Sæmundsdóttir, 18.3.2009 kl. 22:10

12 Smámynd: Umrenningur

Betra að fara hálfur en fullur.

Umrenningur, 25.3.2009 kl. 22:54

13 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Sumum hefur fundist betra að vera fullir

Axel Þór Kolbeinsson, 25.3.2009 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Axel Þór Kolbeinsson
Axel Þór Kolbeinsson

Smellið á höfundarmynd til að lesa skilmála athugasemda.

Translate

Translate

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband