10.2.2010 | 11:40
Skamm! (aftur)
Það er svo margt sem stjórnmálamenn mega skammast sín fyrir, en Sigurður Líndal má jafnvel skammast sín meira. Þótt það sé lagatæknilega í lagi að draga Icesave-lögin síðari til baka fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu þá er það siðferðislega rangt og ekki í anda 26.gr stjórnarskrárinnar, og mun jafnframt festa í sessi neitunarvald forsetans, en ekki þjóðaratkvæðagreiðslur.
Ef Alþingi hefur samþykkt lagafrumvarp, skal það lagt fyrir forseta lýðveldisins til staðfestingar eigi síðar en tveim vikum eftir að það var samþykkt, og veitir staðfestingin því lagagildi. Nú synjar forseti lagafrumvarpi staðfestingar, og fær það þó engu að síður lagagildi, en leggja skal það þá svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningarbærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar með leynilegri atkvæðagreiðslu. Lögin falla úr gildi, ef samþykkis er synjað, en ella halda þau gildi sínu.
Svo er það öll þessi vitleysa í kring um samningagerð við Hollendinga og Breta. Hvílík ósvífni við almenning að bíða ekki eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunar. Skilur þetta fólk ekki að valdið er okkar, ekki þeirra. Stjórnmálamenn starfa í okkar umboði, en valdið liggur hjá almenningi. Ef þeir fara ekki varlega mun almenningur taka af þeim umboð sitt - með góðu eða illu.
Verður kosið um Icesave? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Translate
Translate
Bloggvinir
- Samtök Fullveldissinna
- Rauður vettvangur
- Heimssýn
- Vinstrivaktin gegn ESB
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Börn Íslands
- Félag Fólksins
- Vaktin
- Nýja Lýðveldið Ísland
- Samstaða þjóðar
- Hreyfingin
- Kristin stjórnmálasamtök
- Frjálshyggjufélagið
- Sigurbjörn Svavarsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Ísleifur Gíslason
- Kolbrún Hilmars
- Vilhjálmur Bjarnason Ekki fjárfestir
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Arnþór Helgason
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Frosti Sigurjónsson
- Jón Baldur Lorange
- Haraldur Hansson
- Gullvagninn
- Gunnar Rögnvaldsson
- Valgeir
- Þórhallur Heimisson
- Valan
- Már Wolfgang Mixa
- Jón Lárusson
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jón Ingi Þorvaldsson
- Bjarni Harðarson
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Jón Valur Jensson
- Héðinn Björnsson
- Jón Pétur Líndal
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Kristbjörg Steinunn Gísladóttir
- Braskarinn
- Þór Ludwig Stiefel TORA
- Vilhjálmur Árnason
- Björn Heiðdal
- Haraldur Baldursson
- Ólafur Björn Ólafsson
- Anna Karlsdóttir
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Gregg Thomas Batson
- Einar Björn Bjarnason
- Guðni Karl Harðarson
- Andrés.si
- Rafn Gíslason
- Sigurlaug B. Gröndal
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Guðrún Markúsdóttir
- Hinrik Þór Svavarsson
- halkatla
- Davíð S. Sigurðsson
- Umrenningur
- Kristín Magdalena Ágústsdóttir
- Guðmundur Karl Karlsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Vefritid
- Birgitta Jónsdóttir
- DÓNAS
- Heimir Tómasson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Sæmundur Bjarnason
- Helga Þórðardóttir
- Sigurjón Páll Jónsson
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Elle_
- Himmalingur
- Blogblaster
- Sigurður Sigurðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Guðni Þór Björnsson
- molta
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- GK
- Arinbjörn Kúld
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Sævar Guðbjörnsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Þórður Björn Sigurðsson
- Baldur Hermannsson
- Aron Ingi Ólason
- Ólafur Elíasson
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Sigrún Einars
- Birgir R.
- Jón Þór Ólafsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Grétar Eiríksson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Gústaf Adolf Skúlason
- Jón Valur Jensson
Nýjustu færslur
- Hvern ég styð
- Hryðjuverkahús
- Þrjár miðaldra konur
- Lífsrými
- Bibi
- Ekki fjallvegur
- Það er ýmslegt mögulegt
- Bölvaður aumingjaskapur
- Hálft skref í rétta átt
- Varðandi sendiráð rússa og sendiráð okkar í Moskvu.
- Rúmlega fjögur andlát hverja viku.
- Sjöundi mánuður stríðsglæpa en fátt um mótmæli á Íslandi
- Það þurftu sex að líta á mig í gær
- Loksins eru Íslendingar að rumska
- Borga ferðamenn ekki skatta?
Tenglar
Mínir tenglar
- Pólitískur áttaviti politicalcompass.org
- Skuggaþing Taktu þátt í þingstörfum skuggaþings.
- Icesave fyrir dómstóla
- sprword.com Síða sem er full af ýmsum fróðleik.
- aso brain games
- Free-Europe
- No2EU - Yes to democracy
Athugasemdir
Blessaður Axel.
Ég brosi í gegnum gretturnar þegar ég les þennan pistil þinn.
Hárrétt greining, lýðveldið Íslands byggist á þjóðinni, fólkinu í landinu, ekki geðþótta stjórnmálamanna.
Ekkert í þessum heimi gefur Bjarna Ben þann rétt að semja við breta um ólöglega fjárkúgun. Ef það er gert, þá eru mannrán, handrukkanir, dópsala, allt réttlætanlegt því sá sterki þarf ekki að fara eftir lögum.
Bjarni er ekki ennþá búinn að fatta sín takmörk, og ekki ennþá búinn að fatta alvarleika ICEsave deilunnar. Hún snýst ekki um krónur og aura, vexti eða vaxtavexti. Hún snýst um grundvöll sjálfs réttarríkisins. Þann grundvöll að deilur og ágreiningur er ekki leystur með vopnavaldi eða kúgun, heldur með lögum og rétti.
Allar lausnir ICEsave deilunnar sem hundsa leiðir réttarríkisins, eru ekki bara ólöglegar, þær eru rangar, í dýpstu merkingu þessa orðs.
Og það er gaman að lesa orð baráttujaxls sem þekkir muninn á rétti og órétti, reglu og óreglu.
Baráttukveðjur til ykkar í baráttunni.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 10.2.2010 kl. 11:59
Við verðum að gera áhlaup á alþingi okkur er ekki boðið upp á annað!
Sigurður Haraldsson, 10.2.2010 kl. 13:04
Sæll Ómar.
Það er gott að ég skuli geta fengið þig til að brosa. Þrátt fyrir að við vitum að samningagerð um Icesave er röng, þá er þetta virðingarleysi fyrir stjórnarskránni rangari. Þetta er eitt af því versta sem hefur einkennt íslensk stjórnmál undanfarna áratugi og stjórnmálamenn hafa reynt að með því að segja stjórnarskránna úrelta og almenningur tekur undir því hann veit ekki betur. Stjórnmálamenn verða að fara að bera virðingu fyrir stjórnarskránni og almennum lögum. Annað gengur ekki lengur.
Sigurður. Við skulum sjá til hvað stjórnmálamennirnir gera, en ef þeir reyna einhverjar svona hundakúnstir þá kem ég með þér.
Axel Þór Kolbeinsson, 10.2.2010 kl. 13:20
Valdarán, burt með þessa útlendinga á þingi
Gunnar Svanberg Jónsson 10.2.2010 kl. 18:47
+1,kem lika med
ks 10.2.2010 kl. 20:26
já og verða fleiri
gisli 10.2.2010 kl. 21:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.