. - Hausmynd

.

Kalla nefndina heim

Það á engin samninganefnd að vera að störfum núna viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu.  Það er ekkert nema vanvirðing við almenning og stjórnarskánna að standa í einhverju veseni þegar þetta mál liggur klárlega hjá þjóðinni en ekki hjá stjórnmálamönnum.  Eftir að úrslit þjóðaratkvæðagreiðslu eru kunn geta stjórnmálamenn ákveðið hvað þeir gera í framhaldinu, en eins og er hafa þeir ekkert umboð í þessu máli.
mbl.is Leynifundur um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Óttalega getur þú verið einfaldur.
Hvað er að því að kanna og semja ef um
góða niðurstöðu er að ræða?

Ég 27.2.2010 kl. 18:44

2 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Það er allt að því ef það er í andstöðu við anda stjórnarskrárinnar.  Stjórnarskrá Lýðveldissins eru æðstu lög þjóðarinnar, og mér blöskrar sú vanvirðing sem henni hefur verið sýnt undanfarna áratugi, og sífellt eykst sú vanvirðing.

Axel Þór Kolbeinsson, 27.2.2010 kl. 18:49

3 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

já, ein spurning frá mér, Axel, í skilmálunum hjá þér er talað um að orð lýsi innri manni,  segðu mér þá hverju lýsir titil myndin hjá þér? Vona að myndin lýsi ekki þínum innra manni.

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 27.2.2010 kl. 19:03

4 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Nei, hún gerir það ekki.  Myndin er teiknuð af elskulegri eiginkonu minni og er til hliðar við seríu sem er af víkingum í kringumstæðum sem eru ekki í karakter (t.d. í verslunarmiðstöð að kaupa sér föt).  Hér er ég settur í karakter sem passar ekki alveg.  Ekki að það komi málinu nokkuð við.

Axel Þór Kolbeinsson, 27.2.2010 kl. 19:16

5 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þjáóðaratkvæðagreiðsla, um hvað ?

Finnur Bárðarson, 27.2.2010 kl. 19:47

6 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Skiptir það öllu máli?  Hefur ekki verið ein háværasta krafa almennings að hér verði haldnar þjóðaratkvæðagreiðslur um mikilvæg mál, og nú loksins þegar það er í boði, þökk sé stjórnarskránni, keppast stjórnmálamenn og aðrir um tala tala hana niður.  &. mars verður einn merkasti dagur í sögu lýðræðis á Íslandi frá stofnun Lýðveldisins.

Axel Þór Kolbeinsson, 27.2.2010 kl. 19:51

7 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Alveg rétt, myndin kemur málinu ekki við - en takk fyrir skýringuna. Þetta er bara flott.

Ég er sammála þér varðandi samninga núna og þjóðarakvæðagreiðsluna, stjórnmálamenn allra landa virðast vera hræddir við vald almennings. Þ.e. beint lýðræði.

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 27.2.2010 kl. 20:15

8 Smámynd: Óskar Arnórsson

Sammála þér Axel Þór að þetta verður prófraun fyrir lýðræði á Íslandi og þeirra landa sem eiga í hlut.

Ef ég skulda peninga þá fer ekki rukkari á dyrnar hjá nágrannanum og byrjar "að semja" um skuldina mína. Og lætur þannig að aðalatriðið sé að nágranninn fái svo fína vexti og kjör á skuld sem er inte hans.

það er þreytandi fólk sem styður handrukkara Breta og Hollendinga.

Óskar Arnórsson, 27.2.2010 kl. 20:19

9 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Einmitt.  Þess vegna er það svo mikilvægt að mínu mati að stjórnmálamenn virði stjórnarskránna sem þeir sóru eið að gera.  Hérna erum við loksins komin með vísi að lýðræðisumbótum fyrir almenning, þótt enn megi bæta við.  Mín afstaða gagnvart Icesave-málinu öllu er þekkt þeim sem lesa bloggið mitt, en kemur þessu í raun ekkert við því hér er um að ræða kröfu um lýðræði, og ég hvet alla til þess að sýna það í verki að þeir styðji aukið lýðræði og aukna aðkomu almennings að ákvarðanatöku hér á landi með því að mæta í sína kjördeild þann 6. mars og kjósa - sama hvaða skoðun þeir hafa á málinu.

Axel Þór Kolbeinsson, 27.2.2010 kl. 20:22

10 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég kýs nei og það er löngu ljóst. Eiginlega hef ég engan skilning á þeim sem vilja ólmir semja og borga þrátt fyrir allar upplýsingar sem eru á borðinu.

Óskar Arnórsson, 27.2.2010 kl. 20:52

11 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Það sama mun ég gera Óskar, en ég hef þó innsýn í hugmyndafræði þeirra sem hafa aðra skoðun, en algerlega ósammála þeim.

Axel Þór Kolbeinsson, 27.2.2010 kl. 20:57

12 Smámynd: Óskar Arnórsson

Já Axel. ég tel mig hafa ágætan skilning á fólki sem hrætt. Enn það á ekki að taka ákvarðanir sem stjórnast af hræðslu. það getur orðið dýrara enn fólk heldur.

Óskar Arnórsson, 27.2.2010 kl. 21:13

13 identicon

Ef við fellum Icesave II þá verða Icesave I virk. Bretar þurfa þá bara að samþykkja þessa gagnslausu fyrirvara og málið er leyst.

Er þetta ekki hálfgert klúður orðið alltsaman?

Bjarni 27.2.2010 kl. 22:44

14 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Þetta mál allt er búið að vera klúður frá upphafi Bjarni.  En það er samt sem áður algerlega óréttlætanlegt af stjórnmálamönnum að ætla sér að halda klúðrinu áfram þegar umboðið í þessu tiltekna máli hefur verið tekið af þeim og sett í hendurnar á æðsta valdi þjóðarinnar; okkar.

Axel Þór Kolbeinsson, 27.2.2010 kl. 23:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Axel Þór Kolbeinsson
Axel Þór Kolbeinsson

Smellið á höfundarmynd til að lesa skilmála athugasemda.

Translate

Translate

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband